Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1917, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.05.1917, Blaðsíða 7
SKINFAXI. 39 Útdráttur úf þinggrerð fjórðung-sþing-s U. M. F. Norðlendingafjörðungs. Þingið var háð 4 Akureyri dagana 22. og 23. apríl s. 1. Þar voru tekin til meðferðar þau mál, er fjórðunginn varða og um leið sameig- inleg mál sambandsins, til undirbúnings sambandsþings. I eftirtöldum málum voru gerðar þess- ar samþyktir helstar: 1. Skógrœktarmál. Þingið felur fjórð- ungsstjórninni að fara þess á leit við Rækt- unarfélag Norðurlands, að það leggi til ókeypis, færan mann til leiðbeininga i trjárækt, hjá þeim U. M. F. fjórðungsins, sem trjárækb hafa og leiðbeiningar æskja. Sömuleiðis er stjórninni falið að tilkynna þetta ungmennafélögum og hvetja þau til þess að hafa einskonar skógræktardag, þann daginn sem leiðbeinandi Ræktunar- félagsins heimsækir þau, og fari þá verkið fram undir umsjón bans. Áð fengnum svör- um ungmennafélaganna ákveður stjórnin svo, í samráði við Ræktunarfélagið, komu- dag leiðbeinanda til hvers félags og til- kynnir þeim það, með nokkrum fyrirvara. Leiðbeiningaferðin skyldi þó helst ekki vera siðar farin en, — eftir því sem tíð leyfir — síðari hluta maí, eða snemma í júni, eða að minsta kosti áður en trjá- plöntur fara að laufgast, því eftir þann tíma þola þær ekki flutning, og færsla plantnanna eftir þann tíma, ætti því að vera með öllu bönnuð. 2. íþrótlamál. Þingið lítur svo á, að ekki verði hægt að koma á svo myndar- legu iþróttamóti í vor, að það geti orðið til gróða fyrir íþróttalífið, og ákveður því að fresta því til næsta árs. Á hinn bóg- inn hvetur þingið félögin í fjórðungnum til að leggja alla þá stund á íþróttaiðkanir, hvert á sínu sviði, sem efni þeirra og á- stæður leyfa. 3. Fyrirlestramát. Þingið heimilar fjórð- ungsstjórninni að greiða af fjórðungssjóði alt að kr. 50,00 til fyrirlestrarstarfsemi i fjórðungnum á næsta ári og felur henni að ráða fyrirlesara með svipuðu fyrirkomu- lagi og síðastliðinn vetur. Ennfremur felur þingið fjórðungsstjórninni að sækja um ríílegan styrk til sambandsins til fyrirlestra- starfsemi. 4, Afengisbannlögin. a. Fjórðungsþing Norðlendingafjórðungs skorar hér með á sambandsþing U. M. F. L, að það sam- þykki áskorun til Alþingis, um það að gera ráðstafanir til að betra eftirlit sé haft en hingað til, af hálfu lagaverndara landsins, að bannlögunum sé framfylgt, og veiti fé nokkurt á næstu fjárlögum, til aðstoðar víð það starf. Ennfremur beinir þingið þeirri ósk til sambandsþings Ú. M. F. í., að það skori á næsta Alþingi, að banna með lögum, að neytt sé ýmsra drykkja, sem vínandi eða eitur er í, en ætlaðir eru lil iðnaðar eða verklegra nota, svo sem lampaspritt, ilmvötn og fl. sem ýms- . ir menn hafa neytt og orðið ölvaðir af. b. Fjórðungsþingið skorar á U. M. F. innan sambandsfns, að beita sér fyrir vernd bannlaganna eftir mætti, sérstak- lega á þann hátt, að leitast við að innræta æskulýðnum virðingu fyrir þeim, og óbeit á að fótumtroða landslögin. Báðar þessar tillögur voru samþyktar með öllum atkvæðum. Einnig var til meðferðar sambandslaga- breytingar, fjárhagsmál og fl. Til að mæta á sambandsþingi fyrir fjórðunginn voru kosnir: Erlingur Friðjónsson, Akureyri. Árni Jóhannsson, Akureyri. Magnús Hólm Arnason, Saurbæ. Kristján Jónatansson, Tumsu. Og til vara: Ingólfur Jónsson, Rvík. Helgi Eiríksson, Þórustöðum. Kristján Kristjánsson, Víðisgerði. Aðalst, Sigmundsson, Rvík.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.