Skinfaxi - 01.06.1917, Qupperneq 7
SKINFAXI
47
um sýnishorn að sambandsmerki og skipi
dómnefod um sýnishornin, leggist síðan álit
^eirrar nefndar fyrir næsta sambands]DÍng
til úrskurðar“.
VIII.
Samþykt eftirfarandi fjárhagsáætlun fyr-
ir 1917-1920.
I. Tekjur:
1. Væntanlegur styrkur úr
landssjóði...................kr. 2000,00
II. Gjöld:
1. Til Þrastaskógar . . . kr. 100,00
2. — „Skinfaxa“ .... — 250,00
3. Stjórnarkostnaður ... — 100,00
4. Kostnaður við Samb. þing.
(1920)........................— 250,00
5. Til íþrótta, fyrirlestra, o. tl. — 1300,00
Alls kr. 2000,00
IX. Bannlögin.
„Sambandsþing U. M. F. í. lýsir yfir
eindregnu fylgi við bannlagastefnuna og
ber það traust til næsta Alþingis að það
breyti lögunum svo og bæti eftirlit með
þeim að þau nái til fulls tilgangi sinum“.
Samþ.
X. Kosin stjórn.
Form.: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Ritari: Jón Kjartansson.
Féhirðir.: Guðm. Jónsson frá Brennu.
Varastjórn i sömu röð:
Egill Guttormsson,
Jón Þórðarson,
Erlingur Pálsson.
Endurskoðendur sambandsreikninganna
milli þinga voru kosnir:
Guðm. Kr. Guðmundsson og
Magnús Kjaran.
íþróttasambandi íslands var sent þakk-
arskeyti fyrir „Glímubókina“. Einnig fyrv.
bankastjóra Tryggva Gunnarssyni, sem
enn hafði sýnt félagskapnum velvildarhug
sinn með því að senda sambandinu bóka-
gjöf á þessu tímabili.
Stefán Hannesson kennari sendi þinginn
kveðju og erindi um lýðháskóla,æn sökum>
annríkis, var ekki unt að ræða það á.
þinginu að þessu sinni.
Stephan 6. Stephansson.
Sjaldan hefir nokkur blaðagrein fengið'
betri og maklegri viðtökur hjá þjóðinni,.
heldur en hugvekja sú, sem Jónas Þorbergs-
son ritaði í Skinfaxa í fyrra, um að vel
færi á að Austur-íslendingar byðu St. G.
St. heim. Samskotin voru hafin í haust
á sameiginlegum fundi ungmennafélaganna
í Rvík og komu þá inn hálft fimtahundr-
að krónur. Síðan beittu mörg félögi Rvík
sér fyrir málinu, og hefir samvinna svo
margra og óskildra félaga sjaldan gengið
jafn vel, enn siður betur, Fjársöfnunin
út um land gekk yfirleitt mjög vel. Og
um ungmennafélögin má sérstaklega geta
þess, að þáttakan hefir verið mjög al-
menn. Geta ungmennafélagar glatt sig
við þá hugsun, að þeir hafa átt góðan
þátt í því að hrinda heimboðsmálinu af
stað og i framkvæmd, þó að fjölmargir
aðrir menn og félög hafi starfað ötullega
að sama marki.
Stephan G. Stephansson kom heim á-
góðri stund, rétt fyrir þjóðhátíðina 17.
júní, og landsspítalasjóðsdaginn 19 júní.
Var hátiðhöldunum i höfuðstaðnum að
nokkru Ieyti snúið upp í Stephánshátíð.
Siðan hefir skáldið gengið á milli góðbú-
anna í Rvík og hvarvetna „komið, séð og
sigrað“. 3. júlí n. k. fer hann með Botníu
til Reyðarfjerðar og þaðan landveg un>
Fagradal, upp á Hérað og ef til vill víð-
ar um Austfirði. Þaðan heldur hann
vestur yfir Norðurlönd til að heimsækja
„Berurjóðrin” sín tvö, eyiðibýlin Mjóadal
fremst í [Bárðardal, og Víðimýrarsel í