Skinfaxi - 01.06.1917, Síða 8
48
SKINFAXI
Skagaflröi. Fleira mun hann þar finna
en eyðirústir, í átthögunum fornu. Þykir
líklegra að Stepháni G. Stephanssyni verði
betur fagnað og hlýlegar heldur en Örvar-
Oddi, eftir burtförina löngu. Er ]jað spá
manna, sem kunnugir eru, að víða um
sveitir muni verða mannsöfnuður og liðs-
dráttur þar sem skáldið fer um sveitir.
Fýsi margan að sjá hann og heyra og
veita fylgd yfir næstu heiði.
Gert mun ráð fyrir að skáldið fari land-
veg alla leið til ísafjarðar. Þar stígur
hann á skip og heldur aftur til Reykja-
víkur. Fer hann þá upp í Borgarfjörð
og síðan um suður-láglendið eftir því sem
tími vinst til. Vestur mun hann fara með
haustinu.
Félagsmál.
lífniljgt félag
er það sem Guðmundur frá Mosdal
stofnaði á ísafirði eftir nýárið í vetur.
Það heitir „Árvakur“ og er annað fé-
lagið þar, sem kemur væntanlega í sam-
bandið innan skamms. Félagar eru þegar
orðnir 50, piltar og stúlkur, flest á aldrin-
um 12—20 ára. Og þeir hafa ekki verið
iðjulausir í vetur. Stunduðu fimleika, her-
æfingar og glimu. Opinberlega glímdu 18
þeirra fyrir fullu húsi. Tóbaksbindindis-
flokkur með nálega 30 meðlimum er stofn-
aður.
Áður
hefir verið á það minst, að U. M. F.
Isfirðinga hélt heimilisiðnaðarnámskeið fyrri
hluta vetrarins með góðum árangri. Þegar
góðir menn sáu hvað hér var á ferðum
og þvi námskeiði var lokið, fekk skóla-
nefndin þar bæjarstjórn til þess að veita
100 kr. styrk, ásamt ókeypis húsnæði,
Ijósi og hita, og Guðmund til þess að halda
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Vcrð: 2 krónur.
Ritstjóri: Jónas Jónsson, Skólavörðustíg 35.
Sími 418.
Afgreiðslumaður: Egill Guttormsson.
Skólavörðustíg 8.
íþróttamenn!
Sökum siglingarvandræðanna er ákaf-
lega erfitt að útvega erlend iþróttatæki nú
sem stendur. Egill Guttormsson afgreiðslu-
maður Skinfaxa hefir samt von um að
fá dálítið af íþróttatækjum frá Ameríku
í sumar. Reynandi er fyrir áhugamenn
að snúa sér til hans.
annað námskeið. Skyldu barnaskólanem-
endur hafa þar forgöngurétt til aðsóknar.
Hófst það svo 15. febr. og endaði 31.
marz, 2 stundir á dag. Nemendur voru
33 stúlkur og 19 drengir flest á aldrinum
14—20 ára. Var þarna unnið að úlskurði,
sögun o. fl. og gerðir alls 104 hlutir,
Sennilegt virðist að hugsandi menn myndu
ekki vilja missa Guðmund af ísafirði.
Borgfirðingar
hafa allan viðbúnað til að halda hér-
aðsfund í sumar. í fyrra fél! sú hátíð
niður vegna mislingannn. Almennur vilji
mun það vera þar í sveitunum, að mann-
fagnaður þessi verði á áliðnu sumri,
þegar Stephán G. Stephansson ferðast
um héraðið. Ekki er enn hægt að segja
með vissu, hvenær það verður.
Fél'ógin austnnfjalls
halda ekkert iþróttamót við Þjrósárbrú í
sumar. Veldur því dýrtíðin og siglingavand-
ræðin, en ekki skortur á iþróttamönnum,
eftir því sem segir í bréfi að austan.
Ritstóri: Jónas Jónsson frá Hriílu.
F élagspren tsmiðjan