Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1917, Side 1

Skinfaxi - 01.10.1917, Side 1
Bækur. Frá Englandi hefir borist þessi frásaga, er gerbist þar fyrir alllöngum tíma. Ný ástarsaga hafði verið gefin út, og vakið athygli. í þorpi einu langt uppi í sveit, hafði fólkið heyrt hennar getið og fýsti að heyra hana. Þorpsbúar komu saman einu sinni í viku hjá smiðnum, sem þar bjó og best var að sér, og hann las upp hátt fyrir alla. Áheyrendurnir fylgdu með mikilli eftirtekt og æsing örlögum sögu- hetjanna, stundum grátfegnir gæfunni eða þá syrgjandi, vegna rauna þeirra og hat- andi vonda menn, er lögðu hindranir á hrautir elskendanna. En er sagan var á enda og unnusti og unnusta höfðu sam- tengst æfilangt, þá kunnu áheyrendurnir sér ekki hóf fyrir fögnuði. Þeir þustu til kirkjunnar, hringdu klukkunum og alt þorpið komst í uppnám og kvað við af fagnaðarlátum. Saga þessi sýnir, hvern undramátt bæk- urnar hafa í sér fólginn og hversu við- burðir, sem vel er frá skýrt, geta staðið mönnum fyrir hugaraugum, eins og þeir væru sjálfir að gerast fyrir augliti j)eirra. Bækur eru boðberar hugsananna, milli manna, þjóða og alda. Menn takast þar í hendur yfir höf og álfur. Bækur, blöð og. timarit eru orðin eitt af áhrifamestu menningartækjum nútímans — starfandi afl, er ekkert siðað þjóðfélag getur án verið, en verður að læra að hag- nýta á sem bestan hátt. Vér íslendingar viljum eflaust vera taldir í hóp menningarþjóðanna og þykir því rétt að athuga þetta efni hér að nokkru, ekki síst þar sem Ungmennafé- lögin eiga þar allskylt mál. Bæði er það, að hver einstaklingur getur eigi beinlínis keypt svo mikið af bókum, sem út er gefið, og hann kemst yfir að lesa og svo hitt að ýmsum bókum er þannig háttað, að margir geta hver öðrum að bagalausu, haft full not af einu og sama eintaki. Það er því alment og eðlilegt að menn stofni félög (bókasöfn — testrarfé- lög), til þess að geta haft sem best not bókanna á sem ódýrastan hátt. Sú stefna virðist nú æ meir ryðja sér til rúms erlendis, að stofnun alþýðubóka- safna sé ríkismál og að forsjá þeirra livíli á þjóðfélaginu og sveitarfélögun- um, á sama liátt og ríki og hreppar annast skólamálin. Til þessa eru ýmsar ástæður. Harla lítilsvert virðist, að J)jóð- félagið láti mikið af mörkum, til þess að borgararnir verði læsir, ef það sér þeim svo ekki fyrir sæmilegum bókaforða, jieg- ar „fullnaðarprófinu“ er lokið. Það styrkir kenslu í bættum vinnubrögðum og jafn- rétt er styrkja bókasöfnin. Þau geta aukið þekkingu á verklegum efnum. Það er rélt að leggja fé í endurbætur á vinnuvélum, en eigi mun siður svara kostnaði, að bæta það afl, er öllum vélum stýrir — manh- vitið. Ennfremur má benda á mikilvægi bókasafnanna í stjórnarfarslegum og þegn- félagslegum efnum. Aðstaða þegnsins til þjóðfélagsins hefir gerbreytst á síðustu

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.