Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1917, Blaðsíða 2

Skinfaxi - 01.10.1917, Blaðsíða 2
74 SKINFAXI tímum. Almennur kosningarréttur og kjör. gengi hafa veitt þegnunum aukin völd og skyldur. Sjóndeildarhringurinn og verk- sviðin hafa stækkað, en um leið koma kröfurnar um meiri þekkingu, meiri ábyrgð og sjálfstæðari hugsun. Þá má nefna áhrif bókmálsins á hið mælta mál, ,og hversu góðar bækur efla þjóðrækni, ást á móður- málinu og bókmentun þess. Mönnum virðist og, sem drykkjuskapur og glæpir hafi minkað með bættri alþýðufræðslu og góðu skipulagi á bókasöfnum. Og um leið lækkar kostnaðurinn af fangelsum, Iög- reglu, dómsmálum og fátækraframfærslu. Vanþekkingin verður ávalt dýrust. íslenska þjóðin hefir haft orð á sér fyr- ir bókhneigð og bókvísi. En þrált fyrir það brestur mjög á gott fyrirkomulag um bókaútgáfu, bóklestur og félagsskap um bókakaup hér á landi. Svo margar þjóðir sem lengra eru komnar í hagnýting^bóka en vér, starfrækja lestrarfélög og bóka- söfn, að tæpast verður deilt um tilverú- rétt þeirra. V Vera kann að þau hækki sumar bækur í verði, en þau eru þó að rn. k. sjálfsögð til þess að kaupa öll stærri rit og svo erlendar bækur. Þó að bókmentir vorar séu nú á seinustu árum að verða dálítið fjölskrúðugri og nokkuð þýtt, skortir geisi- mikið á að viðunandi sé. Alþýða notar ekki bókasöfnin nóg, skilur ekki né viður- kennir að heimilin eru eins og skjávana stofan Bakkabræðranna, ef þau skortir þá birtu, er bækur einar geta veitt. Verra er þó hitt, að menn lesa oft argasta rusl, en betri bækurnar bíða dánaruppboðanna „ekki lesnar og óuppskornar. Kvöldvöku- lestrarnir eru að falla úr tísku. Annríki veldur því — fólksfæð — og gróðafíkn. Mannfæðin er orsök ]>ess, að bækur eru hér tiltölulega dýrari en í öðrum löndum, en stundum virðist eins og útgefendur geri sér að leik, að hafa þær sem dýr- astar, (sbr. Ijóðabók H. Hafsteins). Hér liggur því ærið verkefni fyrir þjóð- inni, að koma bókaútgáfu og bókanotkun í sæmilegt horf. Bókasöfn þarf að stofna og starfrækja — kaupa til þeirra innlend- ar og erlendar bækur. Annars er lestrar- kensla og nám erlendra mála hégómi og prjál eitt. Hinsvegar æskilegt, að flestir kynnu eitt hliðmál. Blöðin eiga að hafa stuðning glöggra og víðsýnna ritdómenda er vísi mönnum til vegar. Bóksalarnir eiga að senda blöðunum þær bækur er út koma og bókaskrár oftar en þeir gera. Komið gæti og til mála -að bókasöfnin gerðu sam- band sín á milli. Tilfinnanleg vöntun er það, að ekkert félag skuli gefa út ódýr smárit, t. d. eitt á mánuði. Ungmennafé- lögin eiga mörg, eða starfrækja, bókasöfn. Gætu þau veilt þessu máli mikilsverðan stuðning. Þessar linur eru ekki ritaðar til þess að koma fram með ákveðnar tillög- ur. Síðar gefst ef til vi'l tækifæri til þess. En tilganginum er að mestu náð, ef menn vildu gefa því betur gaum, hvað góð bókasöfn, vel starfrækt og sæmilega metin og notuð af alþjóð manna, gilda fyrir þjóðina — þekking hennar, siðlegan og andlegan þroska. En þeim sem sífelt klifa á því, að „bókvitið sé ekki látið í askana“, og að tómstundunum sé betur varið til flestra annara heiðarlegra starfa en bók- iðna, væri gott að athuga það sem Goethe sagði um listina að lifa: „Gefðu þér á hverjum einasta degi tóm til að skoða eitt- hvert fallegt málverk, hlýða á góðan söng, lesa í ágætri bók og gera að minsta kosti eitt góðverk“. J. K. Leiðrétting. í júníblaði Skinfaxa hefir misprentast í greininni „Efnilegt félag“: „heræfingar", en á að vera „barœfingar11. Og um náms- skeiðið er sagt: „33 stúlkur og 19 dreng- ir“, en á að vera: „19 stúlkur og 33 drengiríl.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.