Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1917, Page 7

Skinfaxi - 01.10.1917, Page 7
SKINFAXI 79 íangað eys niaður snjónum með fótunum og þjappar honum vel saman, svo að hún láti sem minst undan, þegar stokkið er af henni. Seinast gengur maður á skíðunum eftir brautinni til þess að slétta yfir spor- in. Hengjan er þá orðin í beinu áfram- haldi af brekkunni og otan á henni vel troðin íhvolf braut. Ekki er vert að hengj- an sé hærri en 1 metri. Betur fer að auka þá heldur skriðinn — ofau hengju. Fyrir neðan hana treður maður með skíð- unum á fótunum breiða braut hér um hil 8—10 metra niðureftir, til þess að skíðin sökkvi minna í og sitji ekki föst þegar komið er niður af hengjunni. Hengjur eins og hér hefir verið lýst, geta dugað til æf- inga, en fyrir kappraunir þurfa þær að vera breiðari og betur til búnar. Gott er •að búa þær til daginn áður en mótið á að slanda og láta þær siga og trjósa. Skíðin „halda be-,t uppi“, ef ekkert bil er á milli þeirra, — og jiví kyrlátari sem skíðamaðuriun er, meðan á skriðunni stendur, því meiri verður hraðinn. Nauð- synlegt er fyrir þann, sem vill verða góð- ur skíðamaður að temja sér að standa jafn fast i báða fætur. Fyrir þann sem eetlar sér að læra skiðastökk, er áríðandi að byrja á smá stökkum og fara hægt i fyrstu, til þess að ná réltri aðferð og góðu lagi. Ef maður liefir gott vald á sér og bregður til stökksins á réttri stund, þá stendur maður af sjálfu sér. Þegar tleiri en einn æfa sig samtimis, er gott. að þeir horfi hver á annan og „finni að“. Þegar hengjan er búin eins og hér er sagt, má byrja að stökkva. Þá er gengið nokkurn spöl upp fyrir hengjuna og rent sér af stað, staflaust niður hlíðina ofan hengju, í troðnu brnutina íhvolfu. Þegar röndin sem orðið hefir á neðri enda henn- ar (hengju brúninni) finst veila skíðabeygj- unum viðnám, er límabært að hefja sig til stökksins. Annar fóturinn á þá að vera nokkru framar en hinn, skíðin og hnén að snerta hvort annað innanvert. Maður hallar sér dálítið áfram, kiknar nokkuð í knjám, hefur sig því næst til stökks, með því að rétta úr hnjánum, lyftir hælunum, og sveifiar örmunum fram og upp til frek- ari áherslu. Meðan á fiuginu stendur snúa tærnar niður, hælarnir lyftir upp frá skið- unum og þau samhliða (,,paralel“) brekk- unni, bæði í sama fleti. Rétt aður en þau koma niður, er annar fóturinn teygður fram hinum brugðið aftur. Maður á að standa beinn á fluginu og ekki fálma með höndunum. Sá fóturinn, sem framar kem- ur niður, á að varna því að skíðamaður- inn falli áfram, en hinn veitir viðnám falli aftur á bak. Rétt er að kikna ögn i hnjánum, þegar komið er niður. Á fluginu mynda skíðamaðurinn og skíðin framanverð dálítið stærrra horn en „rétt“ (90°). Fer stærð þess eftir því, hvað honum er nauðsynlegt, til þess að standa í brekkunni. Áriðandi er að temja sér að standa jafnt í báða fætur og halda góðu jafnvægi á „skriðunni“ ofan hengju, þá gengur stökkið sjálft vel. Stökkið verður auðveldara ef brekkan neðan hengju er brött, en því erfiðari sem hún er nær sléttu. Meiri von er að sá standi, er fellur áfram, en aftur á bak. Gjalda skal varhuga við að hefjast hærra en maður fær staðið. Miklu meira varðar að stökkva fallega, en að ná löngu flugi. Allar hreyfingarnar eiga að vera fimlegar og hvatlegar. Skíðaíþróttin er fögur og tignarleg og þá eru öll viðbrögð henni sæmileg, ef þau eru fögur. — — 011 skiði ættu að vera sveigð upp um miðjuna. Sveigjan á að vera mest aftan til við „augað“, undir hælnum (l1/^ cm.). Þau eiga að vera „framþung“, beygjurn- ar að vita niður þegar þeim er haldið uppi i framanverðum augunum Beygjan á ekki að vera kröpp. Sú skíðalengd hæfir meðalþungum manni, ef hann nær

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.