Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1918, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.06.1918, Blaðsíða 3
SKINFAXl 43 drýgið dug óveilum dáð við foldar svörð. íþróttir skal iðka eftir fornum sið; limu s na liðka leiki’ og glímur við. Krafta ungum eykur afl að reyna’ og þiótt. Æfður æsku-leikur auðgar lireysti drótt. Vinni, starfið, slritið! styðjið hag vors lands! Efli vilji’ og vitið vinnuþrek hvers manns. Leitið liðs og biðjið lávarð himnaranns; stríðið, erjið, iðjið undir merkjum hans! Jón G. Sigurðarson. Nýárssundið. Það fór fram á nýársdag, eins og venja er til. Veður var ágætt, logn og frostlaust. Keppendur voru 6. Erlingur Pálsson vann sundbikarinn í 4. sinn, þó að hann hafi áður synt hraðara, en næstur honum var Ólafur og þá Jón, báðir bræður hans. Jón er að eins 13 ára að aldri, og mjög efnilegur sundmaður. Sundskeiðið var 50 metrar. Að öllu leyti fór sundið vel fram, en keppendurnir voru alt of fáir. Væri tæplega til ot mikils ællast, að Reykja- vík legði til 20—50 keppendur, svo margt manna sem þar er saman komið. Þá er staðurinn. Þar sem sundið er þreylt, er höfnin eins og forarpollur. Rennur þar út hana alls konar óþverri úr skólpræsum bo rgarinnar. Suður við Skerjafjörð stendur sundskál- inn, er þar var reistur fyrir fáum árum að tilhlutun U. M. F. Reykjavíkur. Hann er nú ekkert notaður. Eru nú hafin sam- tök um það í bænum, að stofna öflugt sundfélag, er eingöngu beiti sér fyrir þeirri íþrótt. Mun ungmennafélagið gefa því sinn hlut i skálanum og ef til vill allir hlut- hafarnir, og yrði hann þá að likindum fluttur út i Örfirisey. Það er nú orðið eini staðurinn kring um Reykjavík þar sem völ er á hreinum sjó. En úr bænum er stutt skemtiganga út i eyna, og enn skemri bein sjóleið yfir höfnina. Má bú- ast við að mikil aðsókn mundi verða að skálanum þarna, að kjarkmiklum ung- mennum mundi þykja hin besta skemtun og hressing að því að róa yfir höfnina að sumrinu, til skálans, og njóta þar sjóbað- anna og hressandi hafgolunnar. Lika gæti komið til mála að nýárssundið færi þar fram. Með þátttöku sinni i nýárssundinu hefir Jón Pálsson sýnt, að heilbrigðum æskumönnum þarf ekki að standa neinn stuggur af sjóböðum, a. m. k. ekki að sumarlagi. Suud er svo fögur íþrótt og nytsöm, að menn verja vel tómstundum æskuáranna ef þeir iðka það með forsjá og kappi. H e i m a i ð j a. (Eftir GuðmunA Jónsson frá Mosdal). I. Eg hef lofað Skinfaxa því, að geta að nokkru þess heimaiðnaðar, sem ungmenna- félögin hér vestra hafa starfað að s.l. vet- ur, eftir því sem mér er kunnugt um. Námsskeið Ungmennafélag ísafjarðar hélt á ísafirði. námsskeið hér í kaupstaðnum með svipuðu fyrirkomulagi og í fyrra (sjá Skinfaxa þá). — I þetta sinn stóð það 5 vikur í október og nóvembermánuðum. Nemendur voru 50, þar af 23 stúlkur, — og unnu alls 123 hluti. Flest var náms- fólkið á aldrinum 14—20 ára. Námsgrein-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.