Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1918, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.06.1918, Blaðsíða 5
SKINFAXI 45 i tómstundum sínum. En að mestu leyti yrðu vinnustofurnar að vera háðar eftirliti þeirra manna er vel væru því starfi vaxn- ir. Á þennan hátt ætla eg, að með endur- bættum skólum, meira íþróttalífi og nægi- legum lómstundum til sanngjarnra skemt- ana, muni einnig geta vaxið upp heilbrigð kynslóð í kaupstöðunum, dugnaðarmeiri, hugsjónaríkari og manngildisfyllri heldur en horfur hafa verið á, á undanförnum ár- um. Framh. Vorþrá. Vorið er komið. Móðir vor jörð hefir kastað hvíta serknum, en klæðst græna mötlinum. Sólargeislarnir færast í auk- ana og verma og lífga alt kalt og dautt. Vordísin sendir yl og birtu lengst inn í sálarfylgsni mannanna og vekur hjá þeim „djúpa djarfa þrá“ — þrá eftir einhverju æðra og fegurra, þrá eftir að reyna á kraftana í þarfir frjálsra og göfugra hug- sjóna, er mættu verða landi og lýð til gæfu og blessunar. Slíkur vorhugur gerir oft vart við sig í lífi þjóðanna. Fagrar frelsis og fram- farahugsjónir vakna og birtast sem roði af fegurri degi, en — því miður verða þær oft að píslarvottum þroskaleysis þjóðanna Heimskan, síngirnin, þröngsýnin og rækt- arleysið ráðast á þær og drepa þær í fæðingunni. Ein af þeim hugsjónum, sem orðið hefir þroskaleysinu að bráð, hér hjá okkur ís- lendingum er þegnskylduvinnuhugmyndin. Það var fögur dagsbrún sem þar birtist og því ílt til þess að vita að þjóðin skyldi ekki skilja hana betur en raun bar vitni, er hún var lögð undir þjóðaratkvœði sum- arið 1916. Eftir þeirri hugmynd sem kemur í ljós hjá Herm. Jónassyni, frumkvöðli málsins, átti þegnskylduvinnan að stefna að því að rækta betur landið, auka félagslyndi og reglusemi og kenna mönnum gott vinnu- lag og vinnustjórn, með öðrum orðum, þegnskylduvinnan átti að vera lyftistöny stórkostlegra framfara lands og lýð \ Þessa hugmynd dauðadæmdi þjóðin. Og hvers vegna? [Jú, dauðasökin mun hafa verið sú, að allir karlmenn frá 18—25 ára áttu að vinna í 3 mánuði án þess að fá peninga fyrir vinnu sína. Gagnið, sem þeir með því ynnu ættjörðu sinni og nám- ið, er als ekki tekið með í reikningiun, svo rígbundinn er hugurinn við aurana. „Islendingar viljum við allir vera“, und- ir þessi orð munu allir íslendingar taka, við tignum ættjarðarást og þjóðrækni, við segjumst „elska og byggja og treysta ó landið“ og syngjum hástöfum: „Á meðan gjálfur gyrðir lönd, þig geymi drottins hönd“. Já, við erum fljótir til að biðja guð að blessa og hefja landið okkar, en ef við eigum sjálfir að hreyfa hönd eða fót í þarfir þess, án þess að vera hálaunaðir fyrir vikið, — þá? Ja, þá þykir okkur 4 mánuðir úr æfinni vera alt of stór skatt- ur. Svona er ættjarðarástin hjá okkur á háu stigi!!! Hér á landi stunda menn aðallega tvær atvinnugreinar, sjómensku og landbúnað. Sjómenn munu, nær undantekningarlaust, vera mótfallnir þegnskylduvinnu, að minsta kosli á þeim grundvelli að aðallega sé unnið í þarfir landbúnaðarins; íljótt álitið virðast líka sjómenn þurfa að leggja rneira í sölurnar en landbúnaðarmenn, en þrátt fyrir það, gætu þeir áreiðanlega Iært mik- ið af þegnskylduv., þar mundu þeir fá tækifæri til að kynnast betur landbúnaðn- um og læra að meta kosti hans, það gæti svo leitt til þess að rígurinn á milli þess- ara tveggja stétta — sem því miður, er stundum helst til mikill — minkaði, eða jafnvel hyrfi. Sjómenn tala líka oft um að sjáfarútgerðin verði að bera hór mest alla skatta. Því vilja þeir þá ekki stuðla

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.