Skinfaxi - 01.07.1918, Síða 6
54
SKÍNFAXI
2.. HéraSssambandiS láti fullnægja eftir-
farandi skilyröum:
a. Væntanlegri stjórn héraössambands-
ins sé faliö aö útvega menn til þess
aö keppa á mótinu i sundi og isl.
glímu og hefir stjórnin óbundnar
hendur til þessa. Glimumenn séu ekki
færri en sex.
b. Hvert félag leggi til sem svarar I
íþróttamann, til þess aö keppa um
hlaup og stökk, svo aö hægt veröi
að veita verölaun fyrir þær íþróttir.
c. Sambandiö bditi sér fyrir því, aö
knattspyrna veröi sýnd á mótinu, ef
unt er.
d. Sambandsstjórn sjái um aö fengnir
veröi samæföir flokkar i söng og
leikfimi, ef unt er, og sömuleiðis, aö
fengnir veröi menn til þess að halda
ræður á mótinu, og leiti fyrir sér meö
þaö í tíma.
e. Sambandið sjái um, að næg föng verði
fyrir hendi, almenningi til skemtunar,
t. d. danspallur.
3. Sambandið sjái um, að tvenn verðlaun
verði veitt fyrir íslenska kappglímu, ein
fyrir fegurðarglímu, þrenn verðlaun fyr-
ir sund og ein fyrir hlaup, langstökk
og hástökk, hvert fyrir sig.
IV. Samþykt að fela stjórn sambandsins
að gera samning um kaup á húseign U.
M. F. „Bláfjall", og annast framkvæmdi'
í þvi efni.
V. Lagt fram svhljóðandi álit frá
T?efnd þéirri, sem skipuð var til þess að
athuga ýms mál, sem sambandið ætti að
hafa með höndum framvegis:
„Við undirritaðir, sem skipaðir vorum i
nefnd til þess að athuga ýms mál, sem sam-
bandið ætti að hafa með höndum framveg-
:is, leggjum til:
3. Að fenginn verði maður fyrri part vetr-
ar (fyrir jól) til þess að ferðast um og
halda 2 fyrirlestra í hverju félagi, enn
fremur skal hann kynna sér störf og
áhuga félaganna og skýra frá því. Þókn-
un fyrir starfa sinn skal hann fá frá
félögunum, ,sem greiði kr. 8,00 fyrir
hvern fyrirlestur og ókeypis fararbema.
2. Að stofnaður verði slysatryggingarsjóð-
ur, sem varið verði til þess að styrkja
þá íþróttamenn, sem kunna að verða
fyrir slysum á íþróttamótum sambands-
sins.
Sjóð þennan höfum við hugsað okkur að
stofna þannig:
a. Með þvi, aö hvert félag gjaldi til hans
10 aura skatt af hverjum félaga.
b. Með því, að selja merki á íþrótta-
mótunum, og leggjum við til að sela
verði þrenns konar merki, sitt með
hverjum lit, á 50 aura, 35 aura og
25 aura.
VI. Lögð fram ' áætlun um tekjur og
gjöld fyrir árið 1918, þannig hljóðandi:
a. T e k j u r :
1. Eftirstöðvar frá fyrra ári . . kr. 30.00
2. Skattur frá félögunum .... — 80.00
Samtals kr. 110.00
b. G j ö 1 d:
1. Kostnaður við íþróttamótið.. kr. 40.00
2. Kostnaður við íþróttakenslu — 50.00
3. Stjórnarkostnaður ..........— 15 00
4. Óviss útgjöld .............. — 5.00
Samtals kr. 110.00
Stjórninni sé falið að sækja um að
minsta kosti 200 kr. styrk úr sýslusjóði
hánda sambandinu.
VII. Kosin stjórn:
Formaður: Einar Erlendsson með 8 atkv.
Ritari: Magnús Jónsson með 9 atkv.
Gjaldkeri: Ólafur Jónsson með 8 atKv.
Varaformaður: Stefán Hannesson.
Vararitari: Brynjólfur Einarsson.
Varagjaldkeri: Sigurjón Árnason.
VIII. Stefán Hannesson: Erindi um að
fulltrúarnir gangist fyrir því, hver í sínu