Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.09.1918, Page 2

Skinfaxi - 01.09.1918, Page 2
66 SKINFAXÍ sjá að stafa af óþrifnaði, hafa rénað, t. d. sullaveikin. Þó er ástandið mjög al- varlegt. Óþrifnaðurinn alt of mikili. Veld- ur því bæði vanþekking, framtaksleysi og fátækt. Alþýðan þekkir ekki nógu vel né viðurkennir lækningakraft vatnsins, eða nothæíi þess til þess að koma í veg fyrir sjúkdóma. Ekki heldur undramátt Ijóss og heilnæms andrúmslofts, né heldur mikilvægi hreinnar hugsunar og siðsam- legrar orðræðu. Og þó að menn viti alt þetta, þá neyðir fátæktin margan mann- inn til að breyta móti betri vitund. Húsa- kynni almennings eru svo bágborin að verulegar framfarir um breinlæti eru varla hugsanlegar meðan svo búið situr. Verst er þó þeirra hlutskifti, sem vita og geta en brestur siðlega alvöru og þroska til þess að breyta eins og þeir best vita. Hér heíir verið minst á mál, sem mjög varðar æskulýð landsins og raunar aljjjóð. Hugsunarháttur manna þarf að breytast, þannig að menn vandi fremur sín um- ræðuefni, í stað hins venjulega veðráttu- spjalls og hégómahjals um hagi náungans eða jafnvel mannskemmandi orðræðu komi mentandi og göfgandi samræður um við- fangsefni mikilmennanna á sviði þjóðmál- anna, bókmenta og lista. Það er góðs viti, ef segja má um ein- hvern ungan mann, að hann sneiði hjá almennum dagdómum um hin auðvirði- legustu málefni en beygi kné sín fyrir æðri unaði, t. d. bókmentum og listaverkum sem mikilmenni heimsins hafa gefið þjóð- unum. Það er eitt hlutverk ungmenna- félaganna að fjölga þeim mönnum. Og þessu líkt er hið mikla starf: að innræta hverjum Islendingi hreinlæti í hngsun, orði og verki. Hagleiðing. Þú hefir kannske horft svo mörgu sinni á hérað þetta af austurfjallabrún og séð ])ar blika öll þau æfiminni sem undin eru þar að Sögu-hún. Þér er þar sjálfsagt margur staður mætur er muni reikar feðra stöðvum á. Eg veit þér muni hitna um hjartarætur og hugur glúpna fyrir djúpri þrá. Sú þrá er hvöt til lífsins gróðurlanda að láta hefjast frægðar Sögu-hún, þau merkin sem að mættu siðan standa og mæna hærra en austurfjallabrún. Og þó ])ú kanske verðir víða að kanna þá vegi er liggja’ í gegnum slys og neyð. — Á vonahimni allra æskumanna er æfinlega stjarna er visar leið. Við rennum augum yfir liðinn tíma, er áar vorir bygðu þetta land og sjáum hvernig lífsins gengur glíma, að gleymskan verpur flestu’ í tímans sand. Og þar er merki milli þeirra að draga í minningunni er eiga nafn sitt geymt og hinna er aldrei sást hver væri saga, þvi sá einn deyr, sem allir hafa gleymt. Eg veit og skil að það er margt sem þreytir, en þungur róður gerir styrka hönd og hver og einn sem krafti sínum beitir hann kernur loks að sinni óskaströnd. Og þá er lífið hans í góðu gildi ef getur hafnað sig við þetta land, hann eignast hæli undir Sögu-sklldi og aldrei verpist hann í tímans sand. En sveitin mín, eg sé þitt merki blikar svo sára-lágt, á timans sóknarunn. Og það er eins og allra rauna bikar sé einmitt drukkinn tíðast liér í grunn. En ef þú verður fús að fögru verki að fella niður vanans heimsku-bönd

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.