Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1918, Blaðsíða 2

Skinfaxi - 01.10.1918, Blaðsíða 2
74 SKINFAXI starfar. En til þess að bæta húsakost alþýðu eru margar leiðir og mörg ráð. Það er eitt merkisatriðið í sambandi við húsagerðarmálið að þjóðin á gnægð vatns- orku. sem mjög víða er nothæf til raf- magns framleiðslu, er síðan geti hitað þjóðinni og lýst um aldir. Annað afriðið er það að samgöngur eru víða svo erfið- ar á landi hér, að bæði er dýrt og torvelt að tlytja að erlent byggingarefni. Eg hefi einu sirmi konrið á bæ þar sem safnað hafði verið fullu húsi af mosa, sem hafa átti til eldsneytis til þess að spara skán- ina — mótak var þar ekkert, en erfiðar samgöngtrr tóku fyrir aðflutning á slein- kohrnr. En skamt frá túninu öslaði straum- hörð stórá óbeishrð til sjávar. En þarna og svo miklu víðar brestur verkfræðilega þekkingu, fé og framsækni til þess að taka náttúruöflin réttum tökum og skapa með þeim holl lífsskilyrði og samboðin siðaðri og gáfaðri þjóð. í síðasla blaði Skinfaxa var minst nokk- uð á hreinlæti. Það er eilt merkisatriðið r' sambandi vtð húsagerðina. Hin lélegu húsakynni alþýðunnar eru ein orsök þess að menn hafa svo mjög að engu hinar vægustu kröfur hreinlætisins. Eða mun það ekki fremttr letja menn til þess að opna oft baðstofugluggana, að hafa verð- ur sumstaðar mosa til eldsneytis? Mun ekki óttinn við kuldann stundum draga úr gluggastærðinni? Vatnsleiðslur og brunna vantar víða á bæjtrm og jafnvel í sumum sjóþorpum, þar sem slík tæki verða þó ódýrari sökum sambýlisins. Baðhús var til forna og fram eftir öldum á hverj- um bæ. En hversu víða eru þau núna? Hér er ekki rúm til að rekja málið nán- ar. En ber ekki að þakka Guðmundi Hannessyni það, að hann reynir til þess að vekja menn til umhugsunar um húsa- gerðina? Vissulega. Við íslendingar er- um svo fáir, að við megum ekki við að neinir kafni í óþrifum. En þegar við að lokinni heimsstyrjöldinni og þeim höml- um, sem hún Ieggur á viðskiftalífið. för- um að vinna að ýmsum endurbótum inn- anlands, þá tjair ekki að afrækja húsa- gerðarmálið. Það er eitt Irið örlagaþrungn- asta og mikilvægasta vandamál, sem nú biður viturlegrar athugunar og skjótra úr- ræða. J. K. Baugabrot. Ávarp Einars Jónssnnar myndliOggvara lil Vestur.fslendinga. ........Eg man það vel frá æsku minni — er fólk tók sig upp og fór hópum sam- an vestur yfir haf — þá þóttumst við, sem heima vorum þess viss, að fyr mund- um við mætast á landinu hins vegar dauðans en í Ameríku, svo löng fanst okkur Ieiðin þangað. Mér var mjög illa við allar Ameríkuferðir, þó þótti mér, eins og öllum okkur, sólarlagið unaðslegt. Það virðist sem það hafi mjög Iokkað vora gömlu forfeður. Eg elska og ber þá dýpstu lotningu fyrir öllu, sem eltir sólina og svo Iangt, sem sögur vorar ná aftur í tímann, er sú elting eitt af aðal lífseinkennum vor- um. Sólarlagið dró forfeður vora frá Nor- egi, út til sólarlagslandsins, og þeir báðu guðina að setja upp hásæti sitt þar sem þeim þætti vænst. Þeir fluttu hásætið þangað sem Hengillinn blasir við austri og þaðan sem Esjan er svo fögur að líta. En fegursta djásnið í þeim nýja hásætis- stað var kvöldsólin, og í áttina til henn- ar, alt út r sólroðann, benti langur fjall- skagi með silfurgyltan Snæfellsás yst á fingrinum. Á þessa töfrasýn varð for- feðrum vorum all starsýnt. Loks hlýddu þeir bendingunni og sólroðinn, sem þeir ekki vildu missa dró þá út. Þeir tóku sig upp og fóru að elta sólina, þeii kom-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.