Skinfaxi - 01.10.1918, Page 8
80
SKINFAXI
Félögunum í NorðlendingafjórSungi hafa
og verið send skýrslueyðublöð, en stjórn
Sunnlendingafjórðungs annast séndingu
þeirra til félaganna þar.
Þau félög er eigi kynnu að heimta skýrslu-
eyðublöðin eru vinsamlega beðin að gera
sambandsstjórninni aðvart um það svo
að hægt sé að senda þeim þau aftur.
Hvert félag á svo að senda skýrslurnar
nákvæmlega og glögt skrifaðar til sam-
bandsstjórnarinnar þegar eftir nýárið.
Verður þá kvittaö fyrir það hér í blaðinu
jafnóðum og þær berast að. Sérstaklega
væri mikilsvert, að þau félög, sem ein-
hverra orsaka vegna gátu eigi sent skýrslu
fyrir árið 1917 gerðu það nú. Að þessu
sinni var að eins sent eitt eyðublað hverju
félagi. Það er sparnaðarráðstöfun og gerð
í því trausti að félögin skrifi annað ein-
tak handa héraðs- og fjórðungsstjórnun-
um. Hvert einasta félag á að senda
skýrslu hvað fábrotin sem störfin hafa
orðið á þessu örðugasta styrjaldarári, jafn-
vel þó að eilthvert félag sé svo fáment,
að það hati ekki rétt til fulltrúakosningar
á héraðsþing, J)á er ekkert sem mælir
gegn |)ví, að )>að sendi ársskýrslu sína.
Héraðssaiukoma í Dölum.
Hið nýstofnaða héraðssamband ung-
mennafélaganna í Dalasýslu byrjaði í sum-
ar er leið að halda héraðssamkomu á sam-
bandssvæðinu. Er slík framkvæmd bein
afleiðing af stofnun sambandsins og mið-
ar að því að treysta félagsböndin Jiar sem
samherjarnir úr öllum félögunum eiga kost
á að hittast og njóta sameiginlega hollrar
glaðværðar þó ekki sé nema eina góðviðr-
is dagstund í júlimánuði.
Samkoma félaganna var haldin á svo-
nefndu Krosshólaleiti ekki langt frá Hvammi,
hinum fræga sögustað. Er staður þessi
l)inn ákjósanlegasti til slíkra hluta, all-
nærri héraðsmiðju í góðu skjóli og vel
fallinn til íþróttasýninga. Samkomuna
sóttu mentt úr öllum félögum sambands-
ins og all margt utanfélagsmanna. Fóru
J)ar fram ræðuböld, söngur, glímur, hlaup,
stökk o. fl íþróltir. Að kvöldi fóru menn
heim glaðir og reifir, en Ungmennafélagar
hétu að finnast aftur að ári og framvegis.
Félögin í Dalasýslu þurfa að sameina efni-
legustu íþróttamenn sína á námsskeið svo
að þeir geti síðan kent heima í félögun-
um. Það er helsta ráðið lil þess að koma
iþróttamálinu í viðunandi horf. Þá geta
og mótin orðið fjölbreyttari og gildi þeirra
vaxið. En þessi samkoma Dalamanna í
sumar er góð byrjun og vafalaust „mjór
mikils vísir“.
Bréfakvöld.
U. M. F. „Eldborg" í Kolbeinsstaðahreppi
Hnappadalssýslu, heldur bréfakvöld i
febrúarmánuði næstkomandi (1919). Bréf-
in sendist til stjórnar félagsins merkt:
„Bréfakvöld11.
Úr Sunnlendingafjórömigi.
Stjórn Sunnlendingafjórðungs hafði ráð-
ið tvo Borgfirðinga til fyrirlestraferða á
fjórðungssvæðinu í vetur, þá Andrés Eyj-
ólfsson í Síðumúla sem er ágætur ung-
mennafélagi, og nágranna hans Halldór
Helgason. Nú fór Andrés um mánaðar-
mót okt.—nóv. „austur yfir fjall“ og hóf
fyrirlestra austast í Rangárvallásýslu og
komst alt Vestur á Rangárvelli. Þá voru
sveitirnar þar fyrir vestan orðnar svo her-
teknar af „inflúenzunni“ að úti var um
allar samkomur j)ar og varð hann því að
hætta við svo búið. Er varla hægt að
gera ráð fyrir, að Borgfirðingarnir fari
seinna í vetur austUr þangað. Fyrirlestr-
um þeirra á Faxaflóaundirlendinu verður
hagað eftir háttum farsóttarinnar. Þegar
um hægist aftur, ætlar fjórðungsstjórnin
að beitast fyrir J)ví, að félögin austan fjalls
fái fyrirlestrarmann í stað Borgfirðinganna.
Ritstjóri: Jóa Kjartansson.
FélugSprentsmiðjan.