Skinfaxi - 01.03.1919, Blaðsíða 8
24
SKINFAXI
að hinn sæli maður sparaði engan hlut
til þess að jeg fengi þá n a f n b ó t, sem
guð hefir mig til skipaðan, og veglegust
lcann að fást: en það er að verða m a ð-
u r. (Nl.)
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Verö: 2 krónur. — (Jjalddagi fyrir 1. júlí
Ritstjóri: Jón Kjartansson, Skálholtsstíg 7.
Pósthólf 516.
Félagsmál.
pessar fréttir munu hverjum Ung-
mennafélaga kærkomnar.
Skýrslur
hafa komið frá þessum félögum um
störf þeirra 1918:
U. M. F. Unnur djúpauðga í Dölum.
— Tindastóll á Sauðárkróki.
Árroðinn i Eyjafirði.
Yalur í A-Skaftafellssýslu.
— Mýrahrepps í Dýrafirði.
Saurbæjarhrepps í Eyjafirði.
Ársritið.
Sambandsstjórnin hefir nú fengið hjá
Fræðafélaginu alla (3) árganga Ársrits-
ins, sem út eru komnir. Er nú búið að
senda ritið öllum sem pöntuðu. — Af
II. og III. árg. eru nokkur eintök enn
óseld. Fjórði árg. ritsins kemur í vor
og er um það samið að Sambandsstjórn-
in fái allmikið af honum til útsölu.
peir, sem kynnu að vilja kaupa Ársritið
hjá sambandsstjórn, hvort heldur þá ár-
ganga, sem út eru komnir, eða gerast
áskrifendur framvegis, gefi sig fram við
fyrstu hentugleika.
Húnvetningar
hafa nú stofnað með sér Héraðssam-
band á grundvelli stefnuskrár U. M.
F. íslands og gengið í Sambandið. Eru
félögin 4, sem gengu í það á stofnfund-
inum. Von er á að fleiri æskufélög í
sýslunni komi á eftir.
Fyrirlestramaður frá Sambandinu
ferðast væntanlega um héraðið í maí
næstk. Húnvetningum er áhugamál að
halda íþróttanámsskeið innan héraðs
svo fljótt, sem því verður við komið.
Bláðið.
Snemma á síðastliðnu ári var heitið
verðlaunum til þeirra, sem sköruðu
fram úr um stuðning við Sldnfaxa. Var
þess þá getið að verðlaunin yrðu ákveð-
in og auglýst síðar. Sá sem einna mest
hefir unnið í þágu Skinfaxa er Sigur-
geir Friðriksson kennari i Skógarseli i
pingeyjarsýslu. Hann fær nú að verð-
launum „þyrna“ í skrautbandi (bókhk-
verð kr. 21.00). Guðm. Skarphéðinsson
kennari i Siglufirði útvegaði 25 nýja
kaupendur og fær að verðlaunum
„Söngvar förumannsins“ (bókhl.v. kr.
15.00). þriðji sölumaður útvegaði 15
nýja kaupendur og fær hann mynd Ás-
gríms af Höfn í Hornafirði. Auk þess
fá 10 aðrir fyrir kaupendafjölgun hver
um sig 2ja króna bók að verðlaunum.
Nýir kaupendur að yfirstandandi ár-
gangi fá eftir vali annaðhvort „pjóð-
félagsfræðina“ eftir Einar Arnórsson
fyrir hálfvirði, meðan upplagið endist,
eða „Heimleiðis“ eftir Stephan G.
Stephansson. Reynt verður og að veita
vcrðlaun þeim útsölumönnum gömlum
og nýjum, sem útvega nýja kaupendur.
Menn eru beðnir að athuga það, að árs-
gjald til Skinfaxa hefir alls ekkert
hækkað síðustu 3 árin. Er þess þvi
vænst, að vinir blaðsins geri nú sitt
til þcss að það geti staðist kostnaðar-
auka þann, sem af styrjöldinni hefir
leitt. Ungmennaf élagar! munið að
Skinfaxi er ykkar blað.
Félagsprentsmiðjan.