Skinfaxi - 01.04.1919, Qupperneq 2
26
SKINFAXl
vinnu og arðsamari en kenslu. Og ef
þeir og skólarnir hyrfu úr sögunni,
hygg eg að höggvið væri stórt skarð í
ínentaáhuga almennings; kennarar
dreifa glæðum út frá sér. Og þá get eg
trúað, að færi um ýmsar bækur, þýddar
og ekki, eins og þar stendur: „Ekki er
skorið upp úr þessum bókum.“ En
það væri ekki vegna þess, að „enginn
vildi skemma góða bók,“ heldur af öðr-
um ástæðum verri. Kennarar eiga að
ryðja liollum bókmentum braut „inn á
hvert heimili.“ Skólar eru tæki til þess.
pað er ekki ábyrgðarhluti að lceppa
að því að koma upp barnaskólum, er
sniðnir séu eftir erlendum fyrirmynd-
uin, með fullu tilliti til þjóðarhátta.
Slíkt er miklu fremur lífsskilyrði. Hinu
má ekki gleyma fyrir því, „að mentun
mannsins byrjar fyrst fyrir alvöru þar
sem skólanum sleppir“ (Nordal). þýð-
ingarnar, sem Nordal ritar um, þurf-
um við að fá, og með þeim gnægð þjóð-
legra bókmenta. En undirstaða allrar
mentunar er gott uppeldi — góðir
barnaskólar, er starfa í samræmi við
góð heimili.
Heimavistarskólar fyrir öll sveita-
börn — það er takmark, sem ung-
mennafélagar þurfa að hafa hugfast.
A. S.
Heima og erlendis.
„Skólablaðið“
hætti að koma út um nýjár 1917.
Hafði það aldrei flotið fjárhagslega, og
sá útgefandi (fræðslumálastjóri) sér
ekki fært að standa straum af útgáf-
unni lengur að sinni, í dýrtíð þeirri, er
þá var. — Um síðustu áramót reis blað-
ið úr rekkju aftur. Tók þá Helgi kennari
Hjörvar við útgáfu þess, og var steypt
saman við það kennarablaðinu „Yerði“
og öðru mentainálariti, er var í fæð-
ingu. Helgi Hjörvar er ötull maður, á-
hugasamur og góður ungmennafélagL
Er hann áður kunnur æskumönnum
sem aðalhöfundur Glímubókar í. S. í,
Margir virðast ætla, að „Skólablað-
ið“ sé einungis fyrir kennara, en komi
öðrum að litlum notum. Slíkt er mesti
misskilningur. Blaðið er ætlað öllum og
öllum jafngott, þeim, er láta sig nokkru
skifta mentun íslendinga og andlega
þjóðarheill. Enda er það svo vel úr
garði gert, að hverjum manni er mikill
gróði að lesa það. Og „Skinfaxi“ telur
illa farið hvert það heimili, er fer á mis
við aðra eins hugvekju og fyrirlestur
Magnúsar skólastjóra Helgasonar um
„heimili og skóla“.
Jörundur Brynjólfsson,
alþingismaður og kennari, flytur al-
fari austur í Biskupstungur í vor, og
reisir bú að Múla. Bætist Tungnamönn-
um þar góður sveitungi. En ilt er til
þess að vita fyrir kennara að missa þar
í bænda hóp einn af sínum bestu mönn-
um. —- Um nýjár í vetur scldi Jörundur
„Skólafélagi Kennaraskólans“ helming
sinn i barnablaðinu „Unga ísland“. Gef-
ur félagið það út framvegis að hálfu
móti Steingrími Arasyni kennara. Er
það vel til fundið, að helsta barnablað
landsins standi í sambandi við Kennara-
skólann.
Víðavangshlaup.
íþróttafélag Reykjavikur efldi tif
víðavangshlaups í ár, svo sem venja þess
er. Var hlaupið frá Austurvelli, suður
Laufásveg, yfir tún og girðingar austan
við Skólavörðuholtið, niður Laugaveg
að Isafoldarprentsmiðju. Átta memr
tóku þátt í hlaupinu, og mátti ekld
minna vera. Engin félög önnur en 1.