Skinfaxi - 01.04.1919, Síða 4
SKINFAXl
]?ór 2 fulltrúar og frá U. M. F. Vísir
1 fulltrúi.
Forseti sambandsins setti þingið, en
forseti var kjörinn hr. Jón Sigfússon
bóndi að Svínafelli; var síðan sungið:
„Ó, fögur er vor fósturjörð“, og þá
gengið til dagskrár: ,
1. Lesin upp og lagður fram endur-
skoðaður jafnaðarreikningur sam-
bandsins fyrir árið 1918. Samþ. at-
hugasemda laust.
2. Skýrt frá starfsemi sambandsins á
liðnu ári og var þetta hið helsta:
Að tilhlutun sambandsins ferðað-
ist hr. Jón Kjartansson ritari U.
M. F. í. á milli U. M. F. á Héraðs-
sambandssvæðinu og flutti fyrir-
lestra. Enn fremur hélt sambandið
íþróttanámsskeið á síðastliðnu vori
að Valþjófsstað í Fljótsdal; kennari
var Ólafur Sveinsson og vísaði for-
maður til skýrslu hans í Skinfaxa.
Sambandið hafði og gengist fyrir
tveimur héraðssamkomum.
3. Milliþinganefnd sú, er kosin var á
síðasta héraðsþingi lagði fram
frumvarp til laga fyrir „Héraðs-
samband Fljótsdalshéraðs“.
4. Starfsemi sambandsins á komandi
ári:
a) Fyrirlestrar. Till. frá hr. pór-
lialli Jónassyni, samþ. með 8
samhlj. alkv. „pingið leggur til,
að væntanleg stjórn sambansins
sjái hverju félagi fyrir 2—3 fyr-
irlestrum á næsta starfsári.
b) Iþróttir. pingsályktun frá br.
Aðalsteini Jónssyni „þingið álít-
ur, að þeim mönnum, sem kost-
aðir voru á íþróttanámsskeiðið
síðastl. vor, beri skylda til að
halda íþróttum þeim við, sem
þeir lærðu þar, og enn fremur
að kenna þær hverjum innan
síns félags. — Enn fremur álítur
þingið heppilegt, að ungm.félög-
in komi saman tvö og tvö og
æfi íþróttir sameiginlega; þó
álítur þingið, að sambandið geti
ekki lagt fram fé að verulegum
mun á þessu ári.“ Samþ. með
6 samhljóða atkv.
Till. frá hr. Magnúsi Stefáns-
syni: „pingið leggur til, að
væntanleg stjórn sambandsins
vinni þ a ð s e m h ú n g e t u r
til þess að halda íþróttamálinu .
svo vel vakandi, scm tök eru
á.“ Samþ. með 8 samhlj. atkv.
d) Heimilisiðnaður. Nefnd sú, sem
kosin var á siðasta Héraðsþingi,
hafði klofnað, og lágu því fyrir
þinginu tvö nefndarálit. Tillaga
meiri hlutans var á þessa leið:
„Héraðsþingið skorar á hin ein-
stöku U. M. F. á sambandssvæð-
inu, að gangast fyrir smá iðn-
sýningum, hvert í sinni svcit,
þar sem sýnl yrði alt það, senx
að heimilisiðnaði lýtur, og á
þann hátt að reyna að glæða á-
huga manna fyrir málinu. —
Héi’aðsþingið sér sér ekki fært
fyrst um sinn, að sinna málinu
frekar, en lofar að halda því
vakandi til frekari framkvæmda
síðar meir.“ Samþ. með 6 sam-
liljóða atkvæðum.
5. Stjórnarkosning. Áður en gengið
var til kosninga skoraðist foi’maður
undan endurkosixingu og sömuleið-
féhirðir. — pessir voru kosnir i
stjórn: Forixi. pórhallur Jónassoix,
bóndi, að Breiðavaði. Ritari Magn-
ús Stefánsson, Eiðunx. Féli. pórh.
Helgason, trésnx., s. st. Til vax-a:
Form. Signxar B. Guttormsson,
Geitagerði. Rit. Guttonixur Sigxirðs-
son, Hleinagarði. Féh. Sigbj. Sig-
urðsson, Ketilsstöðxmx. Endui’skoð-