Skinfaxi - 01.04.1919, Page 8
SKINFAXJ
fá bæknr lánaðar til heimalesturs eru
sönni skilyrðum háð og þeir fullorðnu,
að þvi viðbættu, að þau verði að hafa
ábyrgð foreldra sinna eða meðráða-
manns. Er það gert til þess að þau lánL.
ckki bækur án þeirra vitundar og vilja
og þó öllu fremur til þess að efna til
náinnar samvinnu með foreldrum og
bókasöfnum. Hver og einn lántakandi
er skyldur til að sýna lánsseðil sinn bæði
þegar hann tekur bók eða skilar henni
aftur.
pegar bækur eru keyptár til safnsins,
þá eru þær flokkaðar, skrásettar, stimpl-
aðar aftan á titilblaðið og tölusettar.
Innan á aftara sjijaldið er límt dálítið
pappírsslíður, og venjulega prentuð á
það nokkur varúðarorð til lántakanda,
um góða meðferð á bókunum. Hverju
bindi fylgir seðill (bókarseðillinn) jafn-
stór lánsseðlunum, sem áður voru
nefndir. Á seðilinn er prentaður titill
bókarinnar, töluröð hennar í safninu
og nafn höfundar. þegar bækurnar eru
heima í safninu er bókaseðlunum stung-
ið í þetta slíður, en þegar þær eru tekn-
ar þaðan til útláns, þá eru þeir teknir
og stimplaður á þá lántökudagurinn og
töluröð lántakanda, og þeir geymdir i
safninu ásamt seðlum lántakenda á
þeim degi. Bækurnar eru venjulega lán-
aðar til 14 daga í einu, en sá tími er þó
jafnan framlengdur ef þess er óskað og
bókaverði þykir rétt.
þegar bókunum er skilað, þá ei’u
lánsseðlarnir teknir úr spjaldsliðr-
nnum og bókaseðlarnir látnir þar
aftur. Sést jafnan á þeim hvort bók-
um er haldið lengur en leyfilegt er.
Komi pað fyrir þá sendir safnið lántak-
anda tilkynningu um það á bréfspjaldi.
Ef hann skilar þá ekki bókinni fær hann
aðra tilkynningu tveim dögum siðar.
Sýni hann þá enn ekki skil, þá sendir
safnið mann heim til hans eftir bókinni.
S K I N F A X I.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Verð: 2 krónur. — (Jjalddagi fyrir 1. júli.
Ritstjóri: Jón Kjartnnssov, Skólholtsstíg 7.
Ef hún er glötuð, er honum gert að
greiða andvirði hennar. Annars geldur
hann dagsektir, nokkra aura, frá liin-
um rétta skiladegi og þar til bókin eða
andvirði hennar er greitt safninu. Bóka-
verðir veita þó undanþágu frá slíku, ef
hlutaðeigandi sannar að óviðráðanlegar
orsakir hafi valdið óskilunum. Bóka-
verðirnir eru fyrst og fremst m e n n,
sém binda sig aldrei við bókstaf lag-
anna, þegar þcir sjá hann gengur i gegn
sjálfsagðri mannúð og nxildi. ]?eir hafa
fá ákvæði og fyrii'mæli, en fylgja þeiixi
stranglega, þegar engar sérstakar ástæð-
ur mæla þeim í nxóti. þaixnig er hver
lántakandi undantekningarlaust sviftur
afnotaréttinunx af safninu, uns hann
hefir sýnt full skil á bókum þeinx, sem
hann hafði að láni og greitt að fullu þær
dagsektir, er á hann voru lagðar.
Félagsmál.
Skýrslur
hafa þessi félög sent:
U. M. F. Siglufjarðar.
— Fljótsdæla.
Garðarshólmi í Mýrdal.
Kennaraskólans.
Tóbaksbindindi.
Tóbaksbindindisflokkarnir eru beðn-
ir að senda greinai’gerð unx stöi’f sín og
meðlimafjölda til Steindórs Bjöi’nsson-
ar kennara, Grettisgötu 10 i Reykjavík.
F élagsprentsmiSj an.