Skinfaxi - 01.09.1919, Qupperneq 1
Til kanpenda Skiníaxa.
Jón Kjartansson, sem um nokkurn
undanfarinn tímahefir haft með höndum
ritstjórn Skinfaxa, afgreiðslu blaðsins,
fjármál þess og sambandsins yfirleitt,
hefir nú látið af þeim störfum og er far-
inn af landi burt til náms. Dvelur í Eng-
landi og kynnir sér þar ýmsa liluti er
lúta að samvinnuverslun.
I stað hans tekur nú við blaðinu, og
mörgum öðrum störfum Jóns Kjartans-
sonar í þágu félaganna, annar kennari,
Ólafur Kjartansson. Hann var fyrrum
kennari í Vík í Mýrdal, en hvarf síðan
til Ameriku og hefir með dæmafárri
elju og ástundun tekist að brjótast gegn-
um fullnaðarnám í uppeldisfræði við
háskólann í Chicago. Mun hann vera
fyrsti Austur-lslendingur, sem svo vel
hefir komið ár sinni fyrir borð við
mentastofnun í Vesturheimi.
Næsta vor verður haldið sambands-
þing, og væntanlega kosin ný stjórn til
næstu þriggja ára. Vegna breyttra
kringumstæða, aukinnar dýrtíðar og
verðfalli peninganna cr óhjákvæmilegt
að auka tillög félagsmanna í sambands-
sjóð, ef nokkur von á að vera til að fé-
lögin geti haldið áfram að starfa til
gagns fyrir orkumenn landsins.
pær ráðstafanir, sem núverandi sam-
bandsstjórn og ritstjóri gera i vetur,
munu allar miða að því, að undirbúa
breytinguna, sem gera þarf á vori kom-
andi.
Eins og á stendur nú með hag félag-
anna, verður það að teljast mikið happ
fyrir þau, að fá gamlan félagsbróðir,
sem dvalið hefir undanfarin 6 ár i einni
af stórborgum nýja heimsins, til að
annast um blaðið, þó að ekki sé víst,
því miður, að það verði nema um stund-
arsakir. Hann mun í blaðinu oft hafa
ástæðu til að víkja að háttum vest-
manna, sem bæði má verða til eftir-
breytni og viðvörunar. Aðkomumað-
ur hefir að mörgu leyti góða aðstöðu til
að veita nýjum og liressandi straumum
inn í félagsskap okkar, sem mjög hefir
lamast af afleiðingum styrjaldarinnar
og dýrtíðarbreytingunum.
En allir þeir, sem trú liafa á varan-
legu gildi ungmennafélagssamtakanna,
þurfa nú i vetur að leggjast á eitt, og
taka höndum saman við að koma sam-
bandinu aftur í æskilegt liorf.
Menn eru beðnir að snúa sér til Ólafs
Ivjartanssonar, Skólavörðustíg 25, póst-
hólf 516, með bréf og innborganir við-
víkjandi Skinfaxa.
Reykjavík 1. okt. 1919.
Jónas Jónsson
sambandsstjóri.