Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.1919, Qupperneq 4

Skinfaxi - 01.09.1919, Qupperneq 4
68 SKINFAXi Jní að eftir höfðinu dansa limirnir. Eg hygg þvi að bannlögin eigi góða fram- tíð í Bandaríkjunum. Karl Sveinssozi rafmagnsfræðingur, dáinn „Er þegar öflgir ungir falla, sem sígi í ægi sóládagmálum.“J?essiorðgóð- skáldsins Bjarna Thórarensens duttu mér í hug, þegar eg frétti lát sveitunga míns, Karls rafmagnsfr. Sveinssonar frá Suður-Hvammi í Mýrdal. Karl sál. var sonur merkishjónanna Vilborgar Einardóttur og Sveins Ól- afssonar í Suður-Hvammi i Mýrdal. Hafði hann lesið verkfræði, aðallega rafmagnsfræði ytra í fleiri ár, fyrst í Danmörku en síðar á pýskalandi. Lauk hann námi þar fyrir nokkrum árum og starfaði um ófriðinn aðallega í Berlin. Karl heitinn var einn af þeim sjald- gæfu ungu mönnum, sem vinna að því í kyrþey, að þroska sjálfa sig, og gera sig að sem nýtustum borgurum fyrir þjóðfélag vort. Fyrir 12 árum síðan, lagði Karl sál. af stað út í heiminn, með létta pyngju, en hraustur og heilbrigður á sál og lik- ama, og með ákveðið takmark í liuga. Gegnum ótcljandi erfiðleika tókst honum að ljúka námi við háskólaáSuð- ur-þýskalandi. par tók hann próf í verkfræði með ágætum vitnisburði fyr- ir nokkrum árum síðan. Hafði hann haft 1 huga að vinna að því að beisla vatnsjötnana okkar og láta þá bæta líf vort og kjör. Var honum ljóst þvílílc óhamingja það er fyrir land vort og þjóð, að vera upp á önnur lönd kominn með kol og steinolíu, þegar við höfum í landinu uppsprettu auðs og orku í fossunum; j>vj það er lcunnugt,. að með þeirra afli gætum vér lýst upp og hitað húsin og soðið matinn á hverju einasta heimili á landinu; knúð áfram samgöngu- og iðnaðartæki, og ótal margt í'laira. Karl sál. hafði sterkan áhuga á að koma einhvcrju af þessu í framkvæmd. J?að má vera að það geti dregist að skip verði alment knúð áfram með raf- magni, en til annars í landiu, þar sem nú kol og steinolía eru notuð sem hita og aflgjafi, J>ar getum við notað ein- göngu rafafl framleitt með fossunum. Karl sál. var h eitbundinn J>ýskri meyju af göfugum ættum, ætluðu þau bæði að koma heim hingað í vor, ©g setjast hér að, en þá kom dauðinn og gjöfði enda á lifi þessa unga mans og lians göfugu framtíðarhugsjónum. Dauði hans var ekki aðeins skaði fyr- ir syrgjandi foreldra og ættingja, held- ur fyrir þjóðina í heild sinni, þvi að við eigum alt of fáa slíka menn, sem Karl sál. var. Æfi hans þótt stutt væri var einstök að reglusemi og starfsemi, staðfestu og viljaþreki. Minning hans ætti því að lifa meðal okkar, sem þektu og verða okkur til fyrirmyndar. Um ræktarsemi. i. Jafngamalt má það heita íslensku þjóðerni hér á landi ræktarsemin. — Má þar fyrst benda á, hvernig forfeðr- um vorum, sem þó annars oft voru drotnunargjarnir og yfirgangssamir,. fórst við þræla sína, að þeir gáfu þeim oft frelsi og hluta úr landi sínu til á-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.