Skinfaxi - 01.09.1919, Blaðsíða 7
SKINFAXI
71
hraustu og bestu gefnu lifðu af í bar-
dögum, en slíkt á sér ekki stað í nútíma
liernaði; líkamlegir og andlegir aum-
ingjar dvelja heima og aulca kyn sitt,
en hinir hraustu, sterku og huguðu eru
sendir í stríð íil að rotna á orustuvell-
inum.
Aftur á móti hafa ýmsir heimfært
kenningu þessa upp á þjóðfélagsstofn-
anir. Heraclitus frá Efesus, hinn gríski
spekingur, gerði það án efa, þegar liann
sagði, að ófriður væri upphaf alls.
Annars getur kenningin ckki staðist hér
heldur, því að þær stofnanir dafna best
i styrjöldum, sem best eru hæfar til að
reka þær áfram, en sem alls ekki eru
hollar fyrir sanna framför liins ment-
aða heims. Fámenn, þröngsýn höfð-
ingjastjórn sest að völdum og skapar
hugsunarháttinn, þvi það eru þeir að
eins, sem hafa prentfrelsi, og þannig
geta þeir dreyft út á meðal fólksins eitr-
uðum og fölsknm kenningum.
(Niðurl.)
Fjelagsmenn og fjelagsmál.
Olympiuleikarnir.
pað er nú ráðgert, að þeir verði
haldnir í Antwerpen í Belgíu næsta
sumar.
Alþingi vort hið síðasta veitti 12 þús.
kr. til styrktar íslenskum iþróttamönn-
um, sem þá sækja, og er það vel farið.
petta verður víst í fyrsta sinn, sem
við komum fram á alþjóðaíþróttamóti
sem sjálfstæð þjóð, og væri þvi ósk-
andi, að fulltrúar okkar yrðu sér og
þjóð okkar til sóma.
Sigurður Guðjónsson, lýðkennari.
I haust var ráðinn kennari við gagn-
fræðaskólann í Hafnarfirði Sigurður
Guðj ónsson lýðháskólamaður.
Sigurður er Eyfellingur að ætt og
uppruna, og gamail ungmennafélagi.
Hann fór til Danmerkur fyrir 8 árum
síðan, til að Icynna sér lýðlíáskóla Dana
og kom hann heim aftur í ágúst i sum-
ar.
Hann er bláfátækur maður, en með
framúrskarandi dugnaði og viljaþreki
náði hann takmarkinu er hann setti sér.
Stundaði hann lengi nám við hinn
fræga Askov-lýðháskóla á Jótlandi.
Einnig ferðaðist hann mikið um Dan-
mörku, og kyntist öðrum lýðmenning-
arstofnunum.
Að 1-oknu námi i Askov var hann um
tíma kennari við næslstærsta lýðhá-
skóla Dana í Vallekilde á Sjálandi.
Sigurður mun hafa í hyggju að starfa
að lýðháskólastofnun hér á landi, og
óskum vér honum til lieilla mcð það.
Sigurður er einn af þeim mönnum,
sem hafa rutt sér bfaut af eigin ram-
leik, cr hann glögt dæmi þess hvað
reglusemi og viljaþrek samfara farsæl-
um gáfum fá afkastað.
Alþýðnbókasaín Chicagoborgar.
Hvergi í víðri veröld eru eins mörg
og fullkomin alþýðubókasöfn og í
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
1 hverri borg er falleg alþýðu-bók-
hlaða, og í stórborgunum eru þær
glæsilegar hallir, stærri en landsbóka-
safnið hér, sem innihalda öll nútíma
þægindi.
Nú ætla eg í fám orðum að minnast
á alþýðubókasafn Chicagoborgar. það
er marglyft stórhýsi í miðhluta bæjar-
ins, sem skift er i margar deildir, mjög