Skinfaxi - 01.10.1919, Blaðsíða 8
80
SKINFAXI
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Verð: 2 trðnur. — Gjalddagi fyrir 1. júlí
Ritstj.: Ólafur Kjarlunsson, Skólavörðustíg 25.
Pósthólf 516.
Félagsmenn og íélagsmál.
Björn Jakobsson, íþróttafræðingur.
Alþingi vort hið siðasta stofnaði sam-
eiginlegt kennaraembætti fyrir menta-
og kennaraskólann, og í embætti þetta
var nýlega skipaður Björn Jakobsson
íþróttafræðingur.
Björn Jakobsson er vafalaust efnileg-
asti og lærðasti íþróttafræðingur hér á
landi. I mörg ár varð hann að gefa sig
við illa borgaðri tímakenslu, en þrátt
fyrir það varði hann miklum tíma og
fé til að læra og þroska sjálfan sig.
Fór hann oft til Norðurlanda og fleiri
landa, til að nerna nýjar íþróttir, og
las hann oft heilsufræði jafnframt. —
Hann er því mjög vel að starfinu kom-
inn.
pótt ungur sé, þá hefir Björn unnið
islensku iþróttalifi feikilegt gagn. Hann
liefir æft hér ýmsa leikfimisflokka, sem
unun er að sjá á leiksviði. Má segja með
sanni, að það var enginn slíkur flokk-
ur hér áður en Björn kom, sem var
æfður i samræmi við nútíma iþrótta-
reglur og heilsufræði. Enda sást það
best nú á síðastliðnum tveimur árum,
þá er Björn varð að gefa sig við öðru
starfi, að þá féllu allar slíkar æfingar
niður.
Yér óskum Birni til hamingja með
nýju stöðuna, og gleðjumst yfir því, að
hann hefir nú loks fengið sæmilegt
tækifæri, þar sem hann nú getur beitt
kröftum sinum í þá átt, sem hann með
sérstökum dugnaði og óeigingirni hef-
ir alt af verið að búa sig undir.
Erlingur Pálsson, sundkennari.
Hann fór fyrir skömmu lil Norður-
landa, til að húa sig undir yfirlögreglu-
mannsstöðu fyrir Reykjavíkurbæ.
Erlingur er að góðu kunnur meðal
bæjarhúa, og munu margir gleðjast yf-
ir því, að hann hefir verið valinn til
þessa starfa, því að hann er mesti efn-
ismaður, og frábær reglumaður, er
neytir livorki víns né tóbaks, eins og
íþróttamanni sæmir líka vel.
Álítum vér það stóra hamingju fyrir
höfuðstað vorn, að fá Erling í þjónustu
sína, og hyggjum vér, að hann, þá er
fram líða stundir, komi skipulagi á
ýmislegt, er nú fer aflaga lijá oss.
Vínbannið í Noregi.
Nýlega fór fram atkvæðagreiðsla
um algert áfengisbann i Noregi, og var
mikill liluti þjóðarinnar þvi fylgjandi,
Er talið víst, að það verði samþykt af
Stórþinginu síðar meir.
Brátt verður einnig gengið til at-
kvæða um sama mál í Svíþjóð og Dan-
mörku, og óskum vér, að það komist
á í öllum þessum löndum; yrði það oss
ómetanlegur styrkur í baráttu okkar
gegn áfengisbölinu. Munum vér ræða
þetta mál síðar í blaði voru.
TILKYNNING.
Kaupendur Skinfaxa, sem enn skulda
yfirstandandi árgang eða eldri árganga,
eru vinsamlegast beðnir að gera skil
sem allra fyrst, til núverandi ritstjóra.
Félagsprentsmiðj an.