Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1920, Blaðsíða 2

Skinfaxi - 01.05.1920, Blaðsíða 2
18 SKINFAXJ an lærdóm í þessum efnum, þar sem æsku- lýöur i blóma lífs síns féll sem strá fyrir ljá, og gömul og hrum foreldri sátu víöa eftir í sorg og örbirgð. Og eins ætti allur sá æskulýSur, er skóla sækir, annaS hvort með lánsfé eða sparifé foreldra sinna, aS telja þaS óhjákvæmilega skyldu sína aS tryggja líf sitt! Nógu sár er söknuðurinn viS barnamissi, þótt eigi þurfi gömul og fátæk foreldri aS berjast viS skuldir, sem börn þeirra skildu þeim eftir. * Enn sem kotniS er, hefi eg eríga áætlun lagt fyrir feröir mínar, þó býst eg við aö feröast eitthvað um austursýslurnar hér i sumar. Skyldu einhver ungmennafélög hér í nánd kæra sig um að ná í mig til fyrir- lestra, geta þau sent mér línu, og mun eg þá gera mitt itrasta til þess aS veröa vi'ð tilmælum þeirra. Sérstaklega væri þá vel til falliö aö fá aS vita, hvort eigi væri von til þess aö nokkurir í því félagi hugs- uðu um líftryggingar. Gæti eg þá notaö timann betur, ef dálítiö væri í haginn búiö á þenna hátt. — Eg stórgleSst í voninni um aS hitta marga góöa ungmennafélaga og kunningja frá fyrri árum víösvegar um land og kynnast mörgum nýjum! — „Seint firnast fornar ástir“, segir máltækiö, og rætist það einnig á mér. Hefir mér að líkindum aldrei veriö þaö meir hugleikiö en einmitt nú aö styöja og hlynna aö ungmenríafélagsskap hér á landi og leggja liösyröi öllu því, er stefnir aö vakning og glaðning islensks æskulýös. Enda hefir þörfin til þess aö líkindum ald- rei veriö meiri en einmitt nú! Meö kærri kveðju til fornra og nýrra kunningja. Hellusundi, Reykjavík. Helgi Valtýsson. Á ég að reykja Æskan er ákvörðunartimabil, því aö það er þá, sem viö verðum að ákveða, hvort þetta eða hitt hafi holl eða góð áhrif á framtið okkar. Ein hin ];ýðingarmesta spurningin er þessi: Á eg að reykja ? Áður en vér leitumst viö að svara henni, ætlum vér að íhuga þessi atriði: Kenna reyking- ar mér hreinlæti ? Munu tóbaksreykingar hjálpa mér til að ná námsstyrk við skóla ? Hjálpa þær mér til að vinna verðlaun á iþróttamóti ? Mun eg fá betra tækifæri ti! að ná i góða stööu hjá stóru iönaðar- eða verslunarfyrirtæki ? Verð eg fyrir betri áhrifum? Gefa reykingar mér háar og göf- ugar hugsjónir? Verð eg meir virtur, á meðal góðra manna, ef eg reyki ? Verð eg leiknari ? Eru meiri líkindi til þess að eg verði langlífur, ef eg reyki ? Verð eg nýtari og betri borgari í þjóðfélaginu, ef eg reyki ? Við skulum fyrst athuga tóbaksreyking- ar í sambandi við hreinlæti og hollustu. Frægur náttúrufræðingur, John Burroughs að nafni segir meðal annars : „Eg er alger- lega á móti allri tóbaksbrúkun. Það er sá versti, ójjrifalegasti og rnest móðgandi vani, sem maðurinn hefir nokkurn tima skapað. Sá, sem reykir er alstaðar til ó- þæginda, hvort heldur er útii eða inni. Hann eitrar andrúmsloftið jafnvel úti á götunni, á strætis- og járnbrautarvögnum, og á gistihúsum og matsöluhúsum, alstað- ar sveimar reykjarsvælan frá honum; sá sem reykir á opinberum stöðum, veldur óþægindum af verstu tegund.“ Uppeldisfræöingar og siðbótarmenn eru stranglega'á móti vindlingareykingum, því að þeir hafa rannsakað visindalega áhrif tól^aks á sálarjn'oska drengja. Merkur ame- ríkskur, skólamaöur, David Starr Jordan, fyrrum rektor við Leland Stanford !iá- skólann. segir um reykingar: Drengurinn sem reykir þarf ekki að

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.