Skinfaxi - 01.05.1920, Side 3
SKINFAXI
19
bera kvíðboga fyrir framtíöinni, því aö
hann á eng'a. Drengir sem reykja, líkjast
ormétnum eplum, sem falla af trjánum
löngu fyrir uppskerutíma. Þeir gera sjald-
an mikil g'lappaskot síöar, því að þeir eiga
engin fulloröinsár. Sá drengur, sem byrjar
aö reykja fyrir 15 ára aldur veröur sjald-
an eöa aldrei langlífur. Það er loku skotiö
fyrir það að hann geti tekiö framförum.
Framtíö hans er fortíð hans. Þegar aðrir
drengir eru að reka þýðingarmikil störf í
þjóðfélaginu er hann að bisa viö að grafa
sér sjálfum gröf og styrkja útfararstjór-
ana.
Selby A. Moran velþektur amerískur
hraðritunarkennari, sem hefir 30 ára
reynslu við að kenna unglingum hraðrit-
un, og er einn hinn fimasti hraðritari, sem
nú er uppi, segir þetta um þá hindrun sem
vindlingareyking"ar hafa fyrir þroska
ungra manna og drengja: Þótt eg lia.fi
langa reynslu sem hraðritunarkennari, og
hafi kent fleiri þúsundum ungra manna
hraðritun, hefi eg ekki enn þekt einn ein-
asta, sem hafði lært að reykja úngur, sem
hefir tekist að verða meira en 3. eða 4.
ílokks hraðritari.
Frægur amerískur dómari er fer með
glæpamál er framin eru af drengjum og
unglingum, segir meðal annars í bæklingi
er hann hefir ritað um áhrif vindlinga-
reykinga: „Eitt hið versta, sem drengir
geta vanið sig á í æsku er að reykja vind-
linga. Þetta er viðurkent fyrir löngu af
•dómurum er fara með unga glæpamenn,
og þó einkum við lögregludómstóla, því að
]>ar koma árlega þúsundir ungtra manna er
farið hafa afvega. Þessum dómurum er
kunnugt um, að næstum því í hverjti ein-
asta tilfelli, hafa drykkjuræflarnir sem
koma fram fyrir þá, sem eru til armæðu
og lmeyksli fyrir foreldrana, þá sjálfa og
ríkið, byrjuðu sem smádrengir að reykja
vindlinga. Síðan leiddi einn óvaninn af sér
annan. Nikotinið og annað eitur í tóbak-
inu skapaði löngun í áfenga drykki. Vind-
lingareykingin náði ekki að eins tökum á
þeim mjög ungum, heldur lagði og grund-
völlinn undir aðra lesti, til að byggja ofan
á þá hnigun og úrkynjun sem vindlinga-
reykingarnar höfðu átt upptökin að.“
Fyrir skömmu var samþykt á allsherj-
ar kirkjuþingi Öldungakirkjunnar í Ame-
ríku eftirfarandi tillaga:
„Þetta kirkjuþing harmar hina miklu
vindlingaeyðslu sem nú á sér stað, og hef-
ir megna óbeit á þeim sviksömu auglýs-
ingum, sem að eins eru eftir peningum.
Og samkvæmt því sem vísindin liafa leitt
í ljós og vitnisburði mikilsmetinna manna,
fyrirlítum við framvegis sölu ogj notkun
vindlinga. Við skorum á alt okkar fólk, að
draga úr þessum skaðsamlega vana og
peningaþjófi og hnekkja þeim sem versla
með tóbak undir falskri grímu föðurlands-
ástar, því að þeir lítilsvirða vísindin og
leiða hjá sér reynslu mætra manna, en færa
sér ógöfugar hvatir í nyt til að venja æsku-
lýð vorn á þennan ósóma. Við skorum á
alla góöa menn, ]ió einkum stjórnarvalds-
menn, presta og sunnudagaskólakennara,
að gera alt sem í þeirra valdi stendur til
að bægja æskulýð þessa lands frá undir-
rót flestra glæpa — vindlingunum.“
Margir stjórnendur og eigendur iðnað-
arstofnana og annara stórfyrirtækja hafa
lýst þvi yfir, að þeir taka ekki framar þá
drengj í þjónustu sína, sem reykja vind-
linga. Má þar til nefna John Wanamaker
aðaleiganda hins mikla vefnaðarvörufirma,
Marshall Field, eiganda stærstu verslunar-
búðar í heimi, Henry Ford höfund og eig-
anda þeirra verksmiðja er smíða Ford-bíl-
ana, sem kunnir eru hér á landi, Edison
hinn fræga hugvitsmann og marga aðra.
Hið mikla verslunarhús sem býr til
Cadilac-bílana, sem eru amerískir og vel
þektir, hefir gefið út þessa tilkynningu:
„Drengi sem reykja, viljum við ekki hafa
í okkar þjónustu. Hér eftir munum við