Skinfaxi - 01.05.1920, Qupperneq 7
SXINFAXI
28
má svo sem nærri geta, hvort þeir menn,
sem varla kunna nokkurt brag'ö rétt, —
hafa lesiö Glímubókina.
Stjórn í. S. í. haföi faliö íþróttafélagi
Reykjavíkur aö gangast fyrir þessu móti,
og leysti þaö sitt hlutverk prýöilega af
hendi, svo þaö mun varla hafa veriö eins
vel gert áöur hér á landi.
Aö mótinu loknu bauö í. R. öllum þátt-
takendum og starfsmönnum mótsins í sam-
sæti á mánudagskvöldið, 21. júní. Bauð
það einnig fleiri mönnum, sem áhuga hafa
fyrir íþróttum; þar voru margar ræöur
fluttar, og aö öllu leyti var ánægjulegt aö
vera þar.
Fyrstur talaði A. V. Tulinius, og skýröi
frá því, aö stjórn í. S. í. hefði komið sér
saman um að senda engta menn á Olympíu-
leikana aö þessu sinui, og var þaö áreiðan-
lega þaö eina rjetta, sem hægt var að
gera, eins og allar ástæður voru. En hann
skoraði líka á menn aö þ a u 1 æ f a sig
undir næstu Olympíuleiki, og byrja taf-
arlaust.
Ungmennafélagar, munum nú það, sem
Helgi Valtýsson kvað:
„Kring oss skjaldborg skilja
skulum ei á foldu.
Vígjum þrek og vilja
vorri fóstunnoldu.“
„Mikið má, ef vel vill.“ Við getum rifiö
okkur upp úr deyfðarmókinu og stuölað
að því, aö þjóðin okkar eigiiist marga
dáðrakka drengi og dygglynd og tápmikil
fljóö.
Og þiö fulltíðamenn, þið megið ekki
liggja á liði ykkar, bæði ungir og gamlir
veröa að vintia aö því að íslenska þjóöin
veröi hraust og tápmikil; hér liggvtr viö
ekki eins mann's líf, heldttr heillar þjóðar.
Góös viti væri þaö, ef hægt væri að
senda fallega sveit af þ a u 1 æ f ð u m
mönnum á næstu Olympíuleiki, eftir 4 ár,
— en það verður að byrja tafarlaust
í d a g, aö æfa og búa sig undir jtá, — en
ekki á morgun.
Aðalsteinn óskírður..
Félagsmenn og félagsmál.
Helgi Valtýsson kennari,
fyrverandi ritstjóri „Skinfaxa“ og for-
maöur Santbands U. M. F. í., er eins og
ávarp hans ber meö sér, nýkominn heim,
alkominn vonandi, eftir markra ára dvöl í
Noregi, jtar sem hann hefir starfaö ýmist
sem blaðamaður eða kennari. Hin siðustu
ár var hann t. d. kennari viö mentaskóla
uppi í sveit skamt frá Bergen.
Helgi er lítið breyttur frá jtví sent áöur
var, er enn fullur af fjöri og áltuga, enda
hefir honum liöiö vel hjá frændum vorurn
Norðmönnum. Er gleðilegt að fá Helga
heirn aftur, jtví aö jtjóð vor er nú síst of
rik af nýtum drengjum, og væri óskandi
aö hún bæri nú gæfu til aö njóta krafta
hans sem lengst. Hann hefir í hyggju að
ferðast eitthvað um Suðurlandsundirlend-
iö í sumar, og munu að líkindum tnörg
ungmennafélög reyna að ná í hann til að
halda fyrirlestra, j)ví aö hann hefir frá
mörgu að segja, sem okkur má aö gagtni
koma í framtíðarstarfsemi okkar. „Skin-
faxi“ býður Helga og fjölskyldu hans vel-
komin til Fróns.
íþróttaskólinn.
Undirtektir hafa veriö ágætar meöal fé-
lagana. Mörg jjeirra hafa lofað nokkurri
upphæð á ári um ákveöið timabil.
Þessi félög hafa riðið á vaöið og sent
okkur peninga:
U. M. F. „Neisti“ ............ kr. 50,00
— „Vorboðinn“, Húnav.s. — 112,00
— „Bifröst“, Önundarfirði — 40,00
— Stafholtstungna ........ — 50,00