Skinfaxi - 01.11.1920, Side 1
11.—12. BLAÐ
REYKJAVÍK, NÓVBR.—DESBR. 1920.
XI. ÁR.
Á ferð og flngi
milli ungmennafélaga í Árness- og
Borgarfjarðarsýslu.
—o—
„Seint fyrnast fornar ástir“, sannaðist
-greinilega á mér, er mér auðnaðist á ný
• eftir margra ára fjarvist, að heimsækja all-
mörg ungm.félög hér sunnanlands í síðastl.
nóvember og desembermánuði. Mér fanst
eg vera orðinn uriglingur á ný. Torfærur
og vegalengdir á versta tíma árs, urðu eins
og leikur, og erfiðleikarnir gleymdust
jafnóðum og afstaðnir voru.
Eg var að heimsækja u n g m e n n a f é-
1 ö g i n ! Hitta gamla kunningja og nýja!
Endurminningar streymdu inn yfir mig
æins og óhemju foss, og vöktu fögnuð og
sársauka samstundis. í sjö endalaus ár
hafði mig dreymt um þetta, en aldrei ])or-
að að vona fyr en síðastliðinn vetur! —
Og nú var eg á ferðinni! — Já, svo sann-
arlega var þetta gamla ísland jafn hart og
jafn kært sem nokkru sinni áður. Nei,
margfalt kærara! Því nú hafði eg eignast
j)að á ný. Á óvæntan hátt. —
Ferðalagið mitt hefir verið svo elskulega
islenskt frá upphafi til enda! Fyrst austur
um Árnessýslu frá io.—21. nóvember í
snjóstorku og þæfingsófærö á jiýðri jörð,
með mýrum og flóum, niðurhleypum og
kviksyndi fyrir lausgangandi og ríðandi.
Langar leiðir um frostbjört kvöld með
svalan fjallkalda noröan af Langjökli og
Kili, og allari himingeiminn í björtu báli
af jjótandi, litfríðum norðurljósum yfir
hvítum sveitum. Fjallasýnin guðdómlega
fögur.
Já, þetta var ísland!
Og þá Borgarfjarðarferðin, i. —22. des.,
sú fyrsta á æfi minni. Eg sárskammaðist
míri fyrir að hafa eigi séð né þekt þessar
undurfögru og föngulegu sveitir og héruö
fyr. En eg huggaði mig ]ió brátt við það,
að eg varð að greiða dálitinn skatt fyrir
sjónina:
Fyrstu dagana óð eg mýrar og flóa á
leiðinni framan úr Borgarnesi og upp að
Lundi í Lundarreykjadal. Rennblautur upp
i hné nær daglega í heila viku. Mér fanst
eg vera orðinn smali á ný! Og undi mér
dável i bleytunni. Það var smágaman að
heyra bullið í stígvélunum! — Og eg sem
hafði kviðið fyrir bleytunni, enda tæplega
verið blautur í fætur stundu lengur í síð-
ustu 20 ár! — Og þá var ekki síðari helm-
ingur ferðarinnar lakari: Klofófærð i
sköflum út allan Andakilshrepp, skara-
broti og riffenni á víxl alla leið út á Akra-
nes.
Já, þetta var íslarid svo elskulega erfitt
og broslega óbúið á öllum sviðum. Fram-
tíðarlandið! Hér var nóg að gera í huridr-
uð ár enn!
*
í Ámessýslu heimsótti eg U. M. F.
„H vöt“ í Grimsnesi, U. M. F. B i s k-
u p s t u n g ri a og U. M. F. H r u n a-
m a n n a h r e p p s. í Gnúpv.hreppi starf-