Skinfaxi - 01.03.1921, Side 8
16
SKINFAXI
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. í.
Terð: 2 króuur. — Gjalddagi fyrir 1. júll.
Kitstj.: Ólafur Kjartansson, Skóluvörðustíg 35.
Pósthólf 516.
Leikmót íslands 1921.
17. júní.
Náttúran ger'ði sitt til þess að gera daginn
hátíSlegan, þvi glaða sólskin var fram und-
ir kvöld. Það leyndi sér heldur ekki, að
hátíð var í Reykjavíikurbæ; fáni var á
hverri stöng og skipin á höfninni voru fán-
um prýdd frá þilfari a'ö efsta húni.
Leikmótið hófst kl. tæplega tvö, þá byrj-
aði hornablástur á Austurvelli, og mesti
fjöldi fólks þyrptist niður í bæ. Þaðan var
haldið suður að kirkjugarði, eii staðnæmst
þar meðan Sig Eggerz flutti ræðu um. Jón
Sigurðsson; að því búnu var lagður sveig-
ur á leiðið og haldið af stað suður á íþrótta-
völl. A. V. Tulinius setti mótilð, en næstur
talaði Bjarni Jónsson frá Vogi, fyrir minni
íslands.
Það hafði verið búist við, að norsku
íþróttamennirnir gætu tekið þátt í mótinu
þá um daginn, en skipið, sem þeir voru
með, kom ekki fyr en kl. io síðd. þennan
dag, og var þá leikum lokið þann dag,
en íþróttamenn fylktu liði og gengu niður
á uppfyllingu undir fánum sínum, Ármanns,
íþróttafél. Rvíkur og A.-D., með íslenska
fánann í fylkingarbroddi. Var Norðmönn-
unum fylgt frá skipi upp á Austurvöll af
iþróttamönnum, en þar voru fyrir menn
þefr, er þeir skyldu gista hjá hér í bænum,
og fóru þeir því þaðan sinn í hverja áttina.
II. Fimleikar.
í þeim var ekkí kept um verðlaun, en
fyrsta dag mótsins sýndi flokkur kvenna
frá íþróttafélagi Reykjavíkur, undir stjórn
Björns Jakobssonar fimleikakennara. Þó að
eg hafi ekki mikið vit á að dæma þessa
íþrótt, þá þori jeg að segja, að þessi sýn-
ing tókst ágætlega, og var til sóma bæði
þeim sem sýndu og kenriaranum.
Síðar á mótinu sýndu Norðmenn sína
leikfimi, en af þvi að á það er minst á
öðrum stað í blaðinu, þá get eg verið fá-
orður um það.
Hvert einasta mannsbarn mun hafa orðið
hrifið, og fylst undrun yfir því, hve langt
er hægt að komast í þessari íþrótt, því
öllum fjöldanum hér í bæ mun ekki hafa
gefist tækifæri til að sjá þvílíka sjón fyr.
III. Útiíþróttir.
Undir þennan lið tel eg öll hlaup, stökk
og köst. Eg hirði ekki um að segja frá
því i sömu röð og það fór fram á mótinu
og heldur ekki get eg sagt nema frá best-
um árangri í hverju.
100 metra hlaup. Þátttakendur voru n
1. verðlaun hlaut Tryggvi Gunnarsson frá
Ármanni í Reykjavík. Hann rann skeiðið
á 12,2 sek. ísl. met sett af sama 1920, er
12 sek.
800 metra hlaup. Þátttakendur 9. 1. verðl.
sami. Hljóp á 2 m. 11 sek. ísl. met sett af
honum 1920 er 2 m. 8,8 sek.
1500 m. hlaup. Þátttakendur 12. Fyrstur
varð Guðjón Júlíusson frá U. M. F. Aftur-
elding og Drengur. Hann rann skeiðið á
4 m. 28,6 sek., og er það ísl. met.
5000 m. hlaup. Þátttakendur 12. 1. verðl.
hlaut sami. Rann skeiðið á 17 m., sem er
íslenskt met.
5000 m. víðavangshlaup. Þátttakendur 6.
Þar varð Guðjón einnig hlutskarpastur.
Hljóp það á 19 m. 8 sek. Þetta var i fyrsta
sinn sem þessi vegalengd var hlaupin sem
víöavangshlaup, svo það er einnig ísl. met.
(Frh.)
Félagsprentsmiðjan.