Skinfaxi - 01.11.1922, Qupperneq 2
82
SKINFAXI
og hvar til ræktunar. Þá hafa og sum
félög komið sér upp l'jikvöllum fyrir
útileilca o. s. frv.
Bókasöfríum og lestrarfélögum hafa
ungmennafélagar komið á fót víðsvegar
út um sveitir. Nokkur félög hafa stofn-
að bókasöfnin eingöngu handa sveitinni,
og annast þá sjálf bókakaup og útlán.
Aftur eru önnur félög, sam hafa bóka-
safnið aðeins innan félags, en utanfé-
lagsmenn hafa þó ærin not af bókunum.
Þetta er einn liðurinn í fræðslustarf-
semi ungmennafélaganna.
Húsnæðisvandræðin í sveitunum —
ekki síðui' en í kaupstöðunum, — hafa
mjög oft verið bagaleg fyrir ungmenna-
félögin. Sum félögin hafa staðið uppi
ráðalaus með útvegun á stað til fund-
arhalda, og skýli undir bókasöfn sín og
önnur tæki. Mörg félög hafa þó bætt
úr þessu með því að koma sér upp
fundarhúsum. Félagsmenn hafa að mestu
leyti unnið sjálfir að þessum húsagerð-
um í frístundum sínum. Sum félög iiafa
reist timburhús, en nokkur steinhús.
Nokkur félög eiga hlut í húsum á móti
lireppnum, og hafa þá hjálpað til að
koma þeim upp bæði með vinnu og fjár-
framlögum. Af þessu má marka, hve
góður félagsskapur getur áorkað, með
samtökum ogsamhjálp. Fundarhúsin eru
mikil hagræði fyrir sveitafélagið í heild
sinni. Öll sveitin nýtur góðs af dugnaði
og ósérplægni félagsins, hún fær að-
gang að húsunum eftir vild til að halda
þar hreppsfundi og aðrar samkomur,
fyrir lítið gjald, óviðkomandi félags-
skapnum.
V.
Sennilega mun ekkert land í Evrópu
vera eins auðugt af heitutn uppsprettum
og Island, sem að líkindum lætur, þar
sem það er mesta eldfjalhdandið annað
en Italía. ■— I fornöld kunnu menn að
meta þessa kosti landsins, með því að
nota heitu lindirnar fyrir baðstaði og
sundlaugar. Vötn eru yfirleitt kaldari
hér á landi en í öðrum löndum vegna
þess hve sumrin eru stutt og köld. Sói-
arhitinn vermir lítið rennandi vatn,
verður þa.ð því ætíð of svalt til sund-
æfinga, hér koma því heitu uppsprett-
urnar í góðar þarfir. Samt hafa þær
verið sorglega lítið notaðar til sundæf-
inga. Ilefir það eins og arínað stafað
af deyfð og framtaksleysi landsmanna.
Síðan ungmennafélögin komu til sög-
unnar hefir orðið mikil breyting áþessu.
Mörg félög hafa bæði búið til sundlaug-
ar, þar sem þær voru engar áður og
endurbætt eldri laugar, sem fyrirlengri
eða skemri tíma voru lagðar niður, og
tekið þær síðan til afnota. Félögin liafa
bygt sundskýli og haldið uppi sundkenslu
og sundæfingum bæði fyrir félagsmenn
sjálfa og aðra. Sundnámið hefir því
tekið miklum framförum víðsvegar um
landið á síðasta áratug. En betur má
ef duga skal, enn eru víða. um landið
ónotaðar, heitar uppsprettur, er bíða eft-
ir einhverjum framtakssömurn mönnum
eða félögum, sem taki þær til afnota,
fyrir þessa þörfu og nytsömu íþrótt.
VI.
Sum ungmennafélög í sveitum hafa
tekið upp þá tegund hjálparstarfsemi,
sem óþekt var hér á landi áður en þau
komu til sögurínar. Ilún er sú, að l'é-
lagsmenn hafa tekið sér fyrir hendur
að vinna nokkra daga endurgjaldslaust
að heyvinnu lijá einhverjum bláfátæk-
um einyrkja i sveitinni, sem fatlast hef-
ir frá starl'i sakir veikinda eða annara
orsaka, til að tryggja honum fóður fyr-
ir búpening sinn. Þannig löguð sjálf-
boðavinna á ekkert skylt við þegnskyldu,
sem heimtnð er með lagaboði, eða skip-
uð sem skyldukvöð, er lögð var á herð-
ar mönnum fyr á tímnm, af konung-
legum embættismönnum eða öðrumlands-