Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1922, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.11.1922, Blaðsíða 5
SKINFAXI 85 Félögin eru dreifð um landið; þau kynnast lítið störfum og kringumstæð- urn hvers annars, vegna fjarlægðar og samgönguleysis. Skinfaxi er sjálfkjörinn að bæta úr þessu að svo miklu leyti sem honum er unt, með hjálp félaganna sjálfra. Allmörg ungmennafélög eiga 10 ára afmæli á yfirstandandi ári, og nokkur næstu ár. Hvert þeirra verður fyrst að segja sína sögu? A öðrum stað er drepið á, hér í Skin- faxa, að það væri vel viðeigandi að saga ungmennafélaganna væri rituð á 25 ára afmæli þeirra, sem verður árið 1931. Drög til slíkrar sögu mætti birta smám saman í Skinfaxa. Sambandsmerkið. Fyrir mörgum árum síðan kom til orða að búa til sambandsmerki handa U. M. F. í.— Margir ungmennafélagar spreyttu sig á því að gera fýrirmyndir af merkinu. Voru margar þeirra smekk- legar og allvel gerðar, en þó líkaði mönnurn þær ekki yfirleitt samt. Sam- bandsstjórninni var þá falið að ráða gerðinni og gefa' merkið út. Stjórnin gerði ráð fyrir a.ð merkið yrði að búa til erlendis, og þá helst í Noregi, eftir fyrirmynd héðan. Ætlaði hún að láta verða af þessu, en þá kom heimsstyrj- öldin, er skaut öllum skelk í bringu, og gerði öll viðskifti við útlönd bæði torsótt og hættuleg. Ekkert varð því úr framkvæmdum lijá stjóininni. Iíéraðsþing Eyfirðinga hefir nú skor- að á sambandsstjórnina að láta gera sambandsmerkið. Það mælist og til þess, að ungmennafélögin geri tillögur um merkisgerðina, og sendi sambandsstjórn. Þegar um margar gerðir er að ræða, er vandi fyrir stjórnina að velja þá úr, sem fiestum gæti geðjast að. Og altaf hljóta einhverjir að verða óánægðir með valið, því enginn gerir svo öllum líki. Sambandsmerkinu á ekki að svipa til vörumerkja eða frímerkja, það á að vera óbrotið og einfalt, en þó smekk- legt. Bláfáninn gamli með stöfum U. M. P. í hefði þessa kosti. Annars ættu menn ekki að gera gerð merkisins að kappsmáli, lntt skiftir meiru að menn kunni að meta það gildi, sem sambands- merki hefir fyrir ungmennafélagsskapinn. U. M^S. K. Þess var getið í Skinfaxa í ágústblað- inu, að á Fjórðungsþingi Sunnlendinga s. 1. vor hefði það að ráði orðið að leysa það samband sundur og stofna úr því aftur fjögur smæri’i. Skyldi eitt þeirra ná yfir Reykjanesið milli Hval- fjarðar og Selvogs. Um stofnun sam- bands í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu verður getið síðar í blaðinu. Hinn 19. þ. m. var haldinn stofnfundur Reykjanes- sambandsins. Heitir það „Ungmenna- samband Kjalarnesþingsa. Það telur 4 félög: „Drenglí í Kjós, „Afturelding” í Mosfellssveit, „Ungmennafél. Reykjavík- ur“ og’ „Ungmennafél. Miðnesinga“, en í þeim eru samtals liðlega liálft þriðja hundrað félagsmanna. 011 félögin sendu fulltrúa, tvo hvert, en aulc þess sátu fundinn nokkrir félagar úr Mosfellssveit og Reykjavík, og Guðmundur frá Mos- dal úr Bandalagi U. M. F. Vestfjarða, svo að fundarmenn voru alls um tutt- ugu. Fjórðungsþingið hafði kosið til undir- búnings sambandsstofnun þessari þau Ellert Eggertsson, Guðbjörn Guðmunds- son og Guðrúnu Björnsdóttur. Mættu þau þarna og, en fulltrúar voru þessir : Frá „Afturelding“: Þorlákur Björnsson og Kjartan Nordahl, frá „Dreng“: Ellert Eggertsson og Magnús H. Blöndal, frá

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.