Skinfaxi - 01.11.1922, Síða 4
S4
SKINFAXI
Skinfaxi
Útgefandi: Samb. Ungmennafél. íslands
12 blöð á ári. Verð 3 krónur. Gjalddagi
fyrir 1. júlí.
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Skin-
faxi Reykjavík Pósthólf 516.
ir mætir menn liafa, sýnt honum viður-
kenningu beeði með gjöfum og á annan
hátt, hefir honum verið veittur styrkur
af opinberu fé í viðurkenningarskyni
fýrir starfsemi sína. Styrks þes.sa nýtur
hann enn. Síðasta alþingi hjó raunar af
honum 200 kr., en þess er þó vænst að
hann verði hækkaður aftur áður en
langt um iíður. Félagsskapnum munar
um þetta þó ekki sé meira. En það sem
lakara er, að fyrir þessa sök er hætt
við að dragi úr áhuga félagsskaparins
og dofni yfir störfum hans. Enginn
félagsskapur, jafn fjölmennur hérálandi,
hefir starfað með eins lítið fé handa á
milli og ungmennafélögin. Styrklækk-
unin kemur þarna ómaklega niður, þar
sem vitanlegt er að enginn féíagsskap-
ur hér á landi hefir eins víðtækum
störfum að gegna sem hann, og sem
öll miða til almenningsheilla.
Sumir menn eru svo bráðlátir að þeir
vilja helst uppskera ávextina samstund-
is og verið er að sá til þeirra, og svo
er um þá, sem vilja strax sjá mikinn
árangur af störfum ungmennafélaganna.
Félagsskapurinn er ennþá svo ungur að
ekki er við þvi að búast að ávextir af
störfum lians séu meiri en þeir eru. -
En á einu sviði hefir hann þó unnið
þrekvirki, hann hefir breytt að miklum
mun hugsunarhætti manna og menn-
ingarbrag til híns betra, þar sem hann
hefir náð að festa rætur, þegar þess er
gætt, hve starfsár hans eru fá og kríng-
umstæðurnar erfiðar. Ahrifin, sem æsku-
lýðurinn verður fyrir í ungmennafélög-
unum, eru þegar komin í ljós, og þau
gera það betur er fram líða stundir.
Hér hefir ekki verið getið um neina
þá mann, sem við ungmennafélögin hafa
verið riðnir og ekki heldur nefnd nein
einstök félög. Að þvi kemur að saga
ungmennaféiaganna vci'öi rítuð, ef þau
halda áfram að starfa með sarna áhuga
hér eftír sem hingað til. Slík saga mætti
ekki síðar koma út, en á 25 ára afmæli
imgmennafélagsskaparins; það verður
1931.
Hér hefir aðeins verið drepið á fá-
ein atriði í störfum, sem félögin fást
við, er því' margt ótalið enn, sem vert
væri að minnast á.
G. 1).
Afmælisár.
Það er algengt að mörg félög halda
afmadishátíð eftir ákveðinn áratug. Við
það tækifæri minnast þau, að jafnaði,
á það sem á dagana heflr driíið frá því
að félagsskapurinn var stofnaður. Þetta
er góður og gildur siður. Vel getur
veiið að sum ungmennafélög ha.fi þenna
sið, en þó mun það ekki vera alment.
Iívert einasta ungmennafélag á landinu
ætti —• á 5 eða 10 ára fresti — aþ
iialda upp á afmæli sitt. Það er nauð-
synlegt, að staldra við liálfan eða heil-
an áratug, til þess að líta yfir farinn
veg — yfir stárfsárin að baki sér, og
þá ekki síður til þess, að athuga þær
leiðir, sem unt er að l'ara, til að ná því
marki, sem framundan er, og sem fé-
lagið hefir áformað að keppa að.
Það væri vel viðeigandi að stjórn
hvers ungmennafélags kæmi því til leið-
ar, að Skinfaxa yrði sent stutt ágrip
al' sögu félagsins, f'yi'stu 5 eða 10 stai'fs-
árin. Þetta gæti oi'ðið mjög lærdóms-
ríkt fyrir félagsskapinn í heild sinni.