Skinfaxi - 01.12.1922, Page 3
9i
SKINFAXI
Möðruvöllum. Hafði héraðssambandið
,,Kynning“ í Hörgár- og Öxnadal boð-
að til fyrirlestrar í kirkjunni á eftir
guðsþjónustu. —
Frá Möðruvöllum fór eg ríðandi út
á Árskógsströnd. Var þá hálfgildings
hríðarbylur og á móti að sækja. Iíélt
eg tvo fyrirlestra í U. M. F. „Reyn-
ir“ á Litla-Árskógssandi, og var þar
mjög fjölment, í ekki stærri sveit, þar
eð veður var eigi sem bezt. Formaður
„Reynis“ er Sigurvin Edilónsson út-
gerðarmaður, áhugasamur mjög um
ungmennafélagsmál og drengur góður.
þann 1. nóv. fór eg svo ríðandi út í
Svarvaðardal, til Dalvíkur. Formaður
félagsins þar er Stefán Hallgrímsson
á Hrafnsstöðum. Hélt eg þar tvo fyrir-
lestra, annan á Dalvík en hinn að
Grund. þaðan fór eg á mótorbát til
Ólafsfjarðar.
Á Ólafsfírði sat eg veðurteptur
(sökum brims og storma) í fulla viku,
og varð eg því allvel kunnugur þar.
Hélt eg þar fyrirlestra fjögur kvöld í
röð, og jókst aðsóknin með hverju
kvöldi. Formaður ungmennafélagsins
er pórður Jónsson, bóndi á þórodds-
stöðurn, ungur maður og efnilegur. Og
margt er þar efnilegra manna í jafn-
lítilli sveit.
Laugardaginn 11. nóv. komst eg loks
á stað til Siglufjarðar á mótorbát.
Dvaldi eg einnig þar um viku sökum
storma og samgönguleysis. Iiélt eg þar
3 fyrirlestra fyrir allmiklu fjölmenni.
Formaður U. M. F. Siglufjarðar er
Vilhjálmur Hjartarson prentari. Ilann
er einn hinna efnilegustu skíðamanna
Siglufjarðar, og hefir unnið fyrstu
verðlaun á skíðamóti þar nyrðra.
Guðm. skólastjóri Skarphéðinsson hef-
ir lengi verið fonnaður félagsins, og
er enn einn bezti stuðningsmaður þess.
Frá Siglufirði hélt eg aftur til Ak-
ureyrar með „Sirius“ þ. 19. nóv. Var
nú ferð minni lokið að mestu, en þó
bárust fyrirlestrabeiðnir úr ýmsum
átturn fram á síðustu stundu. þann
21. hélt eg fyrirlestur í U. M. F.
„Framtíðin", að Grund í Eyjafirði, hjá
Magnúsi bónda. Var þar gott að koma,
og ánægjulegt að gista þetta foma og
nýja höfðingjasetur. þakkaði Magnús
bóndi sjálfur fyrirlestur minn, og var
enginn sjötugs-bragur á orðum hans,
enda er hann ungur í anda og ern
mjög eftir aldri. — Ungmennafélagar
frá Akureyri fluttu mig í bíl báðar
leiðir.
þann 26. nóv. hélt eg fyrirlestur á
skemtisamkomu U. M. F. Akureyrar.
Var þar fjölment mjög (full 600
manns), eins og venjulegt er á ung-
mennafélagsskemtunum þar nyrðra.
þann 29. fór eg á mótorbát út á Kljá-
strönd og hélt þar fyrirlestur í ung-
mennafélögum Höfðahverfis og Greni-
víkur. Formaðui' félagsins í Höfða-
hverfi er Ari Bjarnason á Grýtubakka.
Var þar allmikið fjölmenni saman
komið. — Daginn eftir hélt eg á ný
fyrirlestur á Akureyri. Og tveim dög-
um síðar, þ. 2. des., hélt eg síðasta
fyrirlestur minn í þessari för, að
Kroppi. Var það einnig á vegum U.
M. F. „Framtíðin“, fyrir tilstilli Hall-
dórs Guðlaugssonar bónda í Iivammi,
sem er einn af allra áhugasömustu
ungmennafélagsmönnum þar um slóðir.
þann 4. desember hélt eg loksins
heimleiðis með „Goðafossi“, og voru
þá fullar 6 vikur frá því, er síðast
hafði fallið sjóferð vestur um land frá
Akiu'eyri til Reykjavíkur! — — —
Alls hélt eg 26 fyrirlestra í ferð
þessari, og vom ræðuefnin þessi:
Um ungm.félagsmál (æfisaga
norsku og ísl. ungm.fél.) . . 16 fyrirl.
Um líftryggingar (alþýðu-
fræðsla)................... 5 —
Um þegnskylduvinnu . . . . 2 —