Skinfaxi - 01.12.1922, Blaðsíða 5
SKIN.F AXl
93
íþróttirnar séu aðeins til að veita
skemtun, en ekki hins, að eí'la mann-
inn til líkama og sálar. Mest bei' á
knattspyrnu. Leikfimi æfð nokkuð á
vetrum. Einmenningsíþróttimar ekki
eins í hávegum hafðar. íþróttaáhöld
þurfa að dreifast út um sveitirnar,
hver maður að eiga sinn „dircus“ og
sitt spjót, til þess að geta æft í frí-
stundum sínum. I bæjum, þar sem
menn eiga hægara með að koma sam-
an, þurfa íþróttafélögin að afla sér
áhalda, sem meðlimirnir geta svo æft
sig á í sameiningu. S. K.
Fískaklak.
Herra þörður Flóventsson frá Svart-
árkoti í Bárðardal hefir ferðast í haust
um Suðurland til að vekja áhuga
bænda á fiskarækt og kenna þeim að
færa sér hana í nyt. þórður er roskinn
maður, en þó ungur í anda og áhuga-
samur. Hann hefir enga borgun tekið
fyrir leiðbeiningar sínar og fyrirhöfn,
sem hann hefir látið mönnum í té.
Á ferðum sínum rannsakaði hann
bæði stöðuvötn og' ár, með það fyrir
augum, að komið yrði upp klaki í fi'am-
tíðinni, þar sem skilyrði væru fyrir
hendi.
Árangur af ferðum hans hefir orð-
ið mikill. í Árnessýslu lét hann reisa
klakhús og gera klakstokka, eftir
amerískri gerð, á 4 bæjum. Nú er þeg-
ar byrjað á að klekja þar út bæði sil-
ung og laxi. Bæir þessir eru: Úlfljóts-
vatn, Bíldsfell, Vaðnes og Alviðra.
Bóndinn á Úlflj ótsvatni lét reisa
klakhús og smíða klakstokka, sem taka
nálega 300 þús. silungshrogn. Útbún-
aðurinn allur kostaði um 90 kr. Ofan
í klakstokkana voru lögð um 20 þús.
silungshrogn til útklökunar.
Á Bíldsfelli var hús fyrir hendi, sem
tekið var undir klakið. það er lýst upp
með rafmágnsljósi. þar var komið
fyrir klakstokk, sem rúmar um 100
þús. laxhrogn. Útbúnaðurinn þar kost-
aði aðeins 50 kr. Gert er ráð fyrir að
klekja megi þarna út alt að hálfri
miljón laxhrogna.
Klakhús var reist á Vaðnesi og sett-
ir í það klakstokkar, sem rúma alt að
300 þús. lax- og silungshrogn; það
kostaði um 105 kr. í klakstokkana
voru látin 50 þús. laxhrogn.
Á Alviðru var reist klakhús, er kost-
aði um 250 kr. í klakstokkana voru
þegar látin 370 þús. laxhrogn. Á þess-
um 4 bæjum 'hefir þá verið lagt ofan
í klakstokkana, á síðastliðnu hausti,
um 20 þús. silungshrogn (á Úlfljóts-
vatni) og 520 þús. laxhrogn. Öll voru
laxhrognin fengin frá Alviðru.
Menn bíða með eftirvæntingu að til-
raunir þessar takist vel; og það má
gera sér vonir um það.
Bændurnir, sem komið hafa þessu
nytsemdarfyrirtæki í framkvæmd, eiga
þakkir skilið, og ekki hvað sízt sá,
sem hefir stutt þá með ráð og dáð. þó
að einhverjar misfellur komi fyrir, við
fyrstu tilraun, má vænta þess, að
menn gefist ekki upp, en fikri sig
smám saman áfram, eftir því sem
reynslan kennir. Menn þeir, sem hér
eiga hlut að rnáli, ei'u kunnir að dugn-
aði, og hafa áhuga á hverskonar fram-
förum. Sumir þeirra, að minsta kosti,
hafa verið, og eru enn, áhugasamir
ungmennafélagar, og rná vænta hins
bezta af þeim í þessu fyrirtæki. Ættu
sem flestir að feta í þeirra fótspor.
Vafalaust á. fiskaklakið framtíð fyr-
ir höndum hér á landi, og' er mikil
furða, að það skuli ekki vera orðið
alment um land alt. Árangurinn er