Skinfaxi - 01.12.1922, Qupperneq 6
94
S K I N F A X J
viss, ef rétt er á haldið. Veiði hefir
margfaldast í Mývatni, síðan fiskaklak
var stofnað þar, og svo mundi víðar
eiga sér stað, þar sem silunga- eða
laxaklak yrði stofnað.
Fiskaræktin getur orðið þjóðþrifa-
fyrirtæki; það ætti því að styrkja þá
rnenn af opinberu fé, sem mestan dugn-
að sýna í því, að koma upp klaki og
reka það.
Hér á landi mundi mannfellir af
hungri aldrei hafa átt sér stað á 17.
og 18. öld, ef fiskaræktin hefði þá ver-
ið þekt og starfrækt um alt land.
G. D.
Ný bók.
J>orvaldur Thoroddsen:
Minningabók, 1. bindi.
Bók þessi er gefin út af Safni
Fræðafélagsins í Kaupmannahöfn. Hún
er æfisaga dr. þorvaldar Thoroddsens
og rituð af honum sjálfum. það þarf
ekki að taka það fram, að bók þessi
er snildarlega samin og fróðleg, eins
og alt annað frá hendi þorvaldar.
Bindi þetta nær aðeins yfiræskuárin.
það kemur þó víða við, og getur um
fjölda mentamanna, sem uppi voru
um það leyti, sem höfundurinn var að
alast upp. Hann segir all ítarlega frá
latínuskólanum, eins og hann var á
árunum 1866—75, og lifnaðarháttum
skólasveina og lcennara.
Við lestur þessarar bókar skilur
maður miklu betur en áður, hverjar
orsakir liggja til þess, að höfundurinn
varð svo víðfrægur vísindamaður, sem
raun varð á.
Eflaust hefðu íslendingar getað átt
miklu fleiri mikilmenni og fræga vís-
indamenn, en p. Th., ef námsmenn við
aðal mentastofnun landsins hefðu ekki
jafnframt náminu sökt sér niður í
drykkjuskap og ýmiskonar óreglu. þor-
valdur leiddi hjá sér þessa skóla- og
þjóðarlesti, en í þess stað las hann
af kappi, ekki einungis nytsamar og
fræðandi bækur, heldur líka — og ekki
sízt — á hina stórú bók náttúrunnar,
sem öllum liggur opin.
Ungir námsmenn ekki síður en aðr-
ir, hefðu gott af að lesa æfisögu þor-
valdar, og taka æskuár hans sér til
fyrirmyndar.
U. M. F. Reykjavíkur er nú þegar
byrjað að reisa handa sér bráðabirgða-
skýli til fundahalda, á lóð þeirri, sem
félagið hefir átt nú í mörg ár.
Undanfarin ár hefir félagið vantað
tilfinnanlega fundarhús, að því leyti
hefir það staðið ver að vígi að halda
fundi sína en mörg ungmennafélög í
sveitum, sem yfir sig hafa komið skýli.
Með byggingu hússins má gera ráð fyrir
að ungmennafélagsskapurinn í Reykja-
vík eigi fyrir höndum að blómgast og
dafna.
Nýtt héraðssamband. Hóraðssamband
ungmennafélaganna í Snæfellsness og Hnappa-
dalssýslu var stofnað 24. sept. s. 1. A stofn-
fundinum mættu fulltrúar frá U. M. F.
Eldborg., U. M. F. Dagsbrún og U. M. F.
Staöarsvoitar.
Lög voru samþykt fyrir sambandið, og
i stjórn þess voru lcosnir: Formður, Guð-
mundur Ulugason, Görðum. Ritari, Svein-
björn Jónsson, Snorrastöðtim. Féhirðir,
Bragi Jónsson, Ilofgörðum.
Þá voru og kosnir 3 menn í varastjórn.
Samþykt var að nefna sambandið: Iléraðs-
samband Ungmennafólaga Snæfellsness og
-Ilnappadálssýslu, Skammstafað: Héraðs-
samband U. M. F. S. og H.
Héraðssambandið er gengið í samband
U. M. F. f._____________________________
Prentsmiðjan Acta — 1922