Skinfaxi - 15.05.1923, Page 1
IJI.Al)
REVKJAVÍK, MAÍ lí)23.
XIV. Á K
Trúin á landíð.
A gullaldardögum bar útþráin Islendinga
víða um lönd. Utanferðirnar voru síðasti
og oft merkasti þátturinn í uppeldi æsku-
mahnsins. En þrátt fyrir féð og frægðár-
orðið, sem landinn oft hlaut á ferðum sín-
um, var átthagaþráin dýrasti kjörgripurinn,
sem hann átti. Hana liafði hann hlotið í
vöggugjöf. Hun var horium helgari en alt
annað og bar liann heim fyr eða síðar.
Farmaðurinn gerðist bóndi og tók að yrkja
íslenska jörð. — En frægðin og ferðirnar
vörpuðu ljóma á endurminningarnar og ey-
landið.
Utþráin og átthagaþráin lifa enn í hug-
um vaxandi Islendinga. Þær systur eru
síungar þó háaldraðar séu, og sannkölluð
óskabörn lands og þjóðar. Þó er sú breyt-
ing á orðin, að þeir sem utan fara, eru
ekki lengur bundnir við að gerast sveita-
bændur,- þegar þeir koma heim aftur. Nú
er um fleiri brautir að velja en forðum var,
og margar þeirra af sumum taldar stórum
glæsilegri en sú, sem bændur og bænda-
vinir hljóta að fara.
En fjalldalasyninum er meðfædd trúin á
landið. Hann sér í anda grænar hlíðar og
grösug og víðlend tún, hvar sem hann fer,
og er sannfærður um að þroski og þjóð-
erni íslendinga á eina af sínum meginstoð-
um þar, sem landbúnaðurinn er. Margt
mætti telja þessu til sönnunar, en hér
skal aðeins bent á, að utanferðir Islend-
inga í þágu landbúnaðarins, hafa verið fleiri
síðustu árin en nokkru sinni fyr. Fjölmarg-
ir hafa farið til Noregs og stundað þar
verklegt búnaðarnám á sumriri; en dvalið
við bóknám á vetrurn. Er það alkunnugt
að slíkir menn eru þarfir þjóð sinni, og
ekki síður ungmennafélögum en öðrum.
Þeir kynnast fyrst og fremst þeirri þjóð,
sem er okkur líkari að lunderni og lifnað-
arháttum en nokkur önnur, og sjá jafn-
framt þær fyrirmyndir, sem íslensk ung-
mennafélög hafa verið sniðin eftir.
Síðast liðinn vetur lásu 7 íslendingar
við búnaöarháskólann danska, og hafa víst
aldrei fyr verið jafn margir landar sam-
tímis við þann skóla. Þó hefir námstími
skólans verið lengdur um heilt ár og
námsgreinum fjölgað. Þessi fjölmenni há-
skólamanna hópur sýnir, að Island á
marga syni, sem horfa einhuga á ákveðið
mark í framtíðarlandi sínu. Þeir leggja á
tæpasta vað hins erfiða fjármálatíma, til
þess að afla sér þeirrar mentunar og lær-
dóms, sem hægt er að fá, svo þeir verði
færir um að gerast leiðtogar í búnaðar-
málum hér heima.
G. B.
Ný aðferð.
Um síðastliðin áramót höfðu svo fáir af
kaupendum Skinfaxa greitt síðasta árgang
blaðsins, að sambandsstjórninni þótti ekki
ráðlegt að halda áfram útgáfunni, án þess
að leita fyrir sér um stuðning og frekari
skil meðal ungmennafélaga úti um landið,