Skinfaxi - 15.05.1923, Side 6
14
SKINFAXI
smiðjugólfið. Og það fer illa með mig«.
Eg reyndi að eyða þessu og inti hann
aftur eftir þessum smíðisgripum, senr hann
var að smíða, þegar eg kom inn. Voru
hlekkirnir auðsjáanlega gerðir úr einhverri
þungri málmtegund. Var sem slæi á þá
gullslit.
»Eru hlekkir þessir gerðir úr gu 11 i ?«
spurði eg.
»Nei«, ansaði Manas. »Málmur þessi er
nú eiginlega ekki gull, en hann selst sem
gull, er hann kemur á markaðinn. ■— Mér
skildist á þér kunningi, liérna um daginn
að þér mundi koma vel að eignast festi
eins og þessa og hafa hana um hálsinn.
Ef þú ættir hana, gætir þú auðveldlega
látið leiða þig innsæishlekkjum, ef einhver
yrði til að halda í annan endann, annað
hvort lifandi maður eða dauður. Og eg
hélt, að eg hefði komist að því, að þú
gæfir ekkert um að þokast úr stað. Getur
þú því héðan af haldið kyrru fyrir, eða
því sem næst. Hefi eg því hugsað mér
að smíða ofuriítinn tjóðurhæl. Hann festi
eg við annan andann, svona til vonar
og vara. Ekki þarftu þá annað en ganga
hringinn í kringum hælinn, eins og þú
sérð svo marga gera«.
Tók eg þá einn hlekkinn, til þess að
vita, hve traustur iiann værí og reyndi að
beygja hann. Datt þá af honum gyllingin.
Sá eg þá, að það var hægðarleikur að
beygja hann, af því aö hann var úr blýi.
Eg mátti ekki tefja lengur og kvaddi
Manas. Sagði eg honum, er eg fór út úr
vetksmiðjudyrunum, að hann skyldi ekki
hraða sér með hlekkjafestina. Það væri
ekki óhugsandi, að eg þyrfti að fá hann,
til að smíða annað fyrir mig, sem þarfara
væri en festin sú arna og tjóðurhællinn«.
Og svo segi eg, eins og skáldið:
»Sagan er enduð, eg segi ekki meira,
sá sem vill trúa, hann verður að heyra,
í mannlega lífinu margt getur skeð».
(Framh.)
Héraðssamband
Ungmennafél. Eyjafjarðar 1923.
(Útdráttur.)
Arið 1923, 3. 4. mars, var 2. Héraðs-
þing U. M. F. E. háð á Akureyri, undir
stjórn héraðsritara Kristjáns Karlssonar, í
forföllum héraðsstjóra Jóns Sigurðssonar.
Þingið sátu 16 fulltrúar frá 8 félögum.
Iþróttir. Samþykt var að leita undirtekta
hjá félögum innan sambandsins, um þátt-
töku í íþóttanámskeiði á Akureyri, á þessu
ári, og skyldi sambandsstjórn ákveða, í
samræmi við vilja félagsmanna, hvort náms-
skeiðið skuli haldið eða ekkii
Ennfremur skorað á öll lélög innan sam-
bandsins að stuðla eftir mætti að þátttöku
í íþróttamótum á næstkomandi sumri.
Skógræktarmál. Þingið felur væntanlegri
héraðsstjórn að leita samkomulags við
Ræktunarfélag Norðurlands, eða einhvern
hæfan mann, um leiðbeiningar við gróðr-
arreiti þá, sem til eru eða verða gerðir á
komandi sumri hjá sambandsfélögunum.
Ennfremur vill þingið mæla fast með
því, að öll félög innan héraðsins, helgi
skógræktinni dag, hvert sumar, og felur
stjórninni að hvetja sem mest til samstarfs
í skógræktinni.
Þingstörf. Þingið ályktar að framvegis
skuli tekinn upp sú regla, að þingmenn
skýri, í þingbyrjun, frá störfum félags síns
á undangengnu ári.
Skólamál. Nefndin álítur að alþýðuskóla-
málið sé það mál, sem Ungmennafélögin
ættu að halda fram. Nefndin er þvi hlynt,
að stofnaður verði alþýðuskóli í Eyjafjarð-
arsýslu, svo fljótt sem auðið er og það
því fremur sem líklegt er að Gagnfræða-
skólinn verði gerður að lærðutn skóla, og
því síður sóttur af þeim alþýðumönnum,
sem vilja afla sér almennrar fræðslu.
Nefndin leggur þvi til að þingið kjósi
þriggja manna milliþinganefnd, til að at-
huga málið og gera tillögu í því, fyrir
næsta héraðsþing.