Skinfaxi - 01.07.1923, Síða 2
34
SKINFAXI
í fullu samræmi við þá staðhætti og þjóð-
areinkenni, sem fyrir hendi eru.
íslendingar eru byrjaðir á lýðskólastarf-
semi sinni, enda er full þörf á því, eins
og þjóðmálum okkar er nú komið í ýms-
um greinum. Hitt er líka víst, að hér eru
góð skilyrði fyrir lýðskóla, hvað snertir
námfýsi þjóðarinnar. Margt er þó að at-
huga í þessum efnum, og mun því ekki
ofmælt þó sagt sé að hér sé að ræða um
eitt hið stærsta vandamál þjóðarinnar. Má
þvi síst af ö.llu rasa um ráð fram, heldur
þarf að rökræöa ítarlega tillögur ýmsra
manna, sem fram koma um þetta mál.
G. 15.
Útdráttur
úr fyrstu þinggerð Héraðssatnbands Ung-
mennafélaga Borgarfjarðar, er haldið var
að Svarfhóli 26. og 27. mars 1923.
A þinginu mættu 15 fulltrúar.
Sambandið mynda eftirtöld 10 ung-
mennafélög í Mýra- og Borgarfjarðarsýsl-
um, sem áður stóðu saman um Ung-
mennasamband Borgarfjarðar:
U. M. F. »Brúin« í Hvítársíðu og
Hálsasveit, U. M. F. Reykdæla í Reyk-
holtsdal, U. M. F. »Dagrenning«, Lunda-
reykjadal, U. M. F. »íslendingur«, Anda-
kíl, U. M. F. »Haukur« Leirár- og Mela-
sveit, U. M. F. Stafholstungna, Stafholts-
tungum, U. M. F. Borgarhrepps, Borgar-
hreppi, U. M. F. »'Skallagrímur«, Borgar-
nesi, U. M. F. »Egill Skallagrímsson,
Álftaneshreppi, U. M. F. »I3jörn Hítdæla-
kappi«, Hraunhreppi.
Samþykt var á þinginu :
1. Að halda íþróttamót í Þjóðólfsholti
hjá Ferjukoti, og lielst fyrir slátt. Viðvíkj-
andi reglu á mótinu var samþ. svohljóð-
andi tillaga:
»Til þess að gæta lagalegrar reglu á
mótinu, sé myndaður löggæsluflokkur 11
manna, skal einn kosinn af hverju félagi,
en foringinn ráðinn af stjórninni. Stjórnin
skal jafnframt hlutast til um að hann öðl-
ist þann fylsta rétt, sem unt er, til þess
að starfa samkvæmt landslögum, og aug-
lýsa þetta fyrirkomulag jafnframt mótinu.
Um reglu á mótinu gildir að öðru leyti
það fyrirkomulag, sem verið hefir«.
2. Iþróttakensla. Hafði stjórnin undir-
búið það mál nokkuð. Svohljóðandi till.
samþykt: »Þingið felur stjórninni að ann-
ast íþróttanámsskeið á vori komandi, eftir
því sem umræður benda til«.
3. Fyrirlestrastarfsemi. Samþykt svo-
hljóðandi tillaga:
»Þingið felur stjórninni að fá, ef þess
er kostur, hæfan mann til að ferðast um
meðal sambandsfélaganna og flytja fyrir-
lestra, og telur heppilegast að það sé
fyrri hluta vetrar. Ef kostnaður fer fram
úr 100 kr., skulu félögin látin bera hann
í hlutfalli við félagatölu«.
4. Lögin. Eftir að nefnd hafði athugað
lög sambandsins, og þá sérstaklega frum-
varp, sem stjórnin lagði fyrir þingið, var
þeim vísað frá með svohljóðandi rök-
studdri dagskrá: »1 trausti þess að næsta
sambandsþing komi á skipulagi um heiti
hinna nýmynduðu héraðssambanda, sam-
kvæmt sambandslögum frá 1921, og með
tilliti til þeirra breytinga, sem síðasti aðal-
fundur U. M. S. B. gerði í þessa átt,
sér þingið eigi ástæðu til nýrra breytinga,
og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá«.
Eftirfarandi tillögur ennfremur sam-
þyktar:
»Þing héraðssambands U. M. F. B.
telur nauðsynlegt að athuga vel og reyna
að koma lögum Ungmennasambands Is-
lands í það horf, að sem mest samræmi
geti verið í lögum hinna einstöku héraðs-
sambanda, svo sem með heiti starfsmanna
sambandanna o. fl. Og yfirleitt að undir-
búa næsta sambandsþing svo, að sem
best skipulag geti komist á ungmennafélags-
skapinn í landinu. Enn fremur skorar þing
héraðssambands U. M. F. B. á fulltrúa