Skinfaxi - 01.07.1923, Blaðsíða 7
S KI N F A X I
39
hefir styrk úr hreppssjóði til að halda uppi
bókasafni og lestrarfélagi í sveitinni.
U. M. F. Eldborg Hnappads. hafði
sundnámsskeið frá 19. júní til 3. júlí.
Nemendur 30. Leikmót haldið að Stóra-
hrauni 14. ágúst.
Arið 1919 kom félagið upp sundlaug,
og stofnaði heyforðabúr. 20 félagsmenn
unnu 5 klukkutíma einn sunnudag og
höfðu 1 kaupamann í viku við heyskapinn.
U. M. F. Bifröst, V.ísafs. fór skemtiferð
með 3 öðrum U. M. F. til Ingjaldssands.
Ein skemtisamkoma haldin.
U. M. F. Saurbæjarhrepps Eyjaf. safnaði
í berklaveikissjóð Norðurlands 140 kr.
árið 1920. Arið áður seldi og lánaði fé-
lagið 76 hesta af heyi úr forðabúri sínu.
U. M. F. Garðarshólmi, V.Skapt. hélt
3 skemtisamkomur á árinu 1919. Og fór
eina skemtiför til Seljalandsfoss.
U. M. F. Vestri í Barðarstr.s. lét vinna
8 dagsv. við vegavinnu 1920. Stjórnaði
söng í sóknarkirkjunni. Hélt fþróttanáms-
skeið.
U. M. F. Framtíðin. Húnavatnss. hélt
2 skemtisamkomur, aðra til styrktar hjúkr-
unarfélagi í sveitinni. Félagið hefir stofn-
að lestrarfélag og stendur fyrir því.
U. M. F. Miðfjarðar-Skeggi Húnavatnss.
hefir homið upp heyforðabúri og bygt
hlöðu úr timbri er kostaði 1500 kr. I
henni voru (1920) 50 heyhestaf. Félags-
menn hafa heyjað sjálfir. Ein skemtun
haldin, sundsýning og íþróttir.
U. M. F. Laxdal, Húnv. lét vinna 8
dagsv. endurgjaldslaust hjá einum félags-
manni að bæjarbyggingu.
Það sem hér fer á eftir er eingöngu
tekið úr skýrslum 1919.
U. M. F. Bifröst, V.ísafjs. vann 4 dags-
verk hjá fátækum og sjúkum bónda. Hélt
iðnsýningu og knattspyrnumót í félagi við
4 önnur U. M. F. í Önundarfirði.
U. M. F. Unglingur, Barðastr.s. hélt 2
skemtanir. Farin skemtiferð vestur í Hafra-
fellsskóg.
U. M. F. Hvöt, Árness. hélt 4 skemt-
anir. Á einni þeirra var höfð útsala á
nokkrum heimaunnum munum. Ágóðinn
gefinn Landspítalasjóðnum.
U. M. F. Hrunamanna, Árness. bygði
sundlaug. 35 félagsmenn fóru skemtiferð
til Þingvalla. Búinn til fatnaður og gefinn
fátæku barnaheimili í sumargjöf. 2 skemt-
anir á árinu. Leikinn sjonleikur.
U. M. F. Fram, N.Múlas. héit skemti-
samkomu 17. ág. I sambandi við hana var
haldin sýning á heimaunnum munum.
U. M. F. Máni, A.Skapts. hafði héraðs-
samkomu 21. júní. Sýndar íþróttir. 2 félags-
menn hlutu verðlaun.
U. M. F. Valur, A.Skapts. hafði eina
skemtisamkomu.
U. M. F. Stokkseyrar, Árness. stofnaði
til heimilisiðnaðarnámsskeiðs i4konurvoru
þátt-takendur. Félagið stóð fyrir lestrar-
félagi Stokkseyrarluepps, og kendi 18
drengjum glímur.
U. M. F. Kári, V.Skapts. skaut saman
IOO kr. og gaf þær fátækasta bóndanum
í hreppnum, fyrir jólin.
U. M. F. Framtíðin, A.Skapts. fór 26.
júlí skemtiferð upp í Öræfajökul. Félagið
stóð fyrir almennri skemtisamkomu í des.
U. M. F. Egiil rauði, S.Múlas. hélt eina
skemtisamkomu og sýndi íþróttir. Gaf
7 dagsv. til vegagerðar í hreppnum.
Ástæða væri til að fara nokkrum orð-
um um þessi störf félaganna, þó að ekki
verði það gert í þetta sinn. Því verður
ekkí neitað, að þar sem félögin í sveitun-
um starfa með fjöri og áhuga hafa þau
breytt hugsunarhætti manna stórkostlega.
Þau hafa skapað félagsanda, samhjálp og
samvinnu þar sem hún var áður lítil eða
engin. G. I).