Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1923, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.07.1923, Blaðsíða 3
S KINFAXI 35 sinn, að beita áhrifum sínum í þá átt á næsta sambandsþingi að héraðssambönd nefni sig ungmennasambönd þess héraðs sem þau eru í. 5. Kosningar: Héraðsstjóri Magnús Jakobsson, ritari Ari Guðmundsson, féhirðir Kristján Guðmundsson. Til vara: Héraðsstjóri Lárus Guðmunds- son, ritari Björn Jakobsson, féhirðir Páll Blöndal. Endurskoðendur: Jón Snorrason, Jó- hannes Jónsson. Þingi slitið. A. G. II. ársfundur. Bandalags U. M. F. Vestfjarða, var haldinn að Isafirði dagana 27. og 28. marz 1923. Gerðir fundarins: I. Tillaga frá starfsmálanefnd, er skipuð var þessum mönnum: Guðm. Jónsson frá Mosdal, Stefán Pálsson, Þórður Hafliðason, Björn Guðmundsson, Kr. Kjartansson. a. Fyrirlestrastarfsemi. »Fundurinn fel- ur stjórninni að útvega viðurkendan mann til að flytja fyrirlestra á Bandalagssvæðinu, á komandi ári. Skal hún í því efni snúa sér til stjórnar Sambands U. M. F. I. Einnig skal vinna að framkvæmdum þessa á Bandalagssvæðinu og veita fé úr Bandalagssjóði til fyrirlestra, Fyrirlesarar skulu jafnframt starfa að útbreiðslu og eflingu ungmennafélagsskaparins*. Samþykt í einu hljóði. b. Iþrótiir. Fundurinn skorar á stjórn- ina að beita sér fyrir eflingu og útbreiðslu skíðaíþrótta: 1. Með því að leitast fyrir um, hvar hægt væri að fá best og ódýrast skíða- efni. 2. Með því að leitast við að auka þekk- ingu manna og æfingu á skíðaferðum. 3. Athuga hvort gerlegt muni vera að koma á skíðamóti að vetri komandi. Samþykt í einu hljóði. c. Húsmœdranámskeid. Fundurinn tel- ur sjálfsagt að haldið verði áfram að hafa húsmæðranámskeið á vegum Bandalagsins, fáist nægilegt fé til starfrækslunnar og fel- ur stjórninni að sækja um styrk til ríkis- sjóðs, Búnaðarfél. Islands, Búnaðarsam- bands Vestfjarða og sýslusjóða á Banda- lagssvæðinu. Samþykt í einu hljóði. d. Héraðsmótið. »Nefndin felst á að U. M. F. »Arvakur« fái til afnota við fþróttamót á þessu ári íþróttaáhöld og tekjuafgang frá héraðsmóti Bandalagsins, sumarið 1922, að upphæð kr. 248,70. Lán þetta er veitt til eins árs rentulaust. Samþykt í einu hljóði. II. a. Allsherjarnefnd: Bjarni Ivarsson, Kr. Davíðsson, Kr. Guðmundsson. Svohljóðandi áliti frá nefndinni um erindi séra Sigtr. Guðlaugssonar: »Undirstaða undir allri sannri þroskun er fyrst og fremst mentun og því auðsætt, að þau félög, sem vinna aö því að þroska og bæta kynslóðina þurfa á liðveislu menta- stofnunar að halda. Sé slíkt menningar- tæki ekki fyrir hendi, er allri framfaravið- leitni hætta búin. Félög þau, sem starfa að þroskun og framförum samtíðarmann- anna, þurfa því að leggja alt kapp á að mynda slíka stofnun. En sé hún áður til þá að styðja vöxt hennar og viðgang. Að þessu athuguðu og samkvæmt gjörð- um síðasta Bandalagsfundar, þá skorar fundurinn á öll félög innan Bandalagsins, að gangast fyrir fjársöfnun á þessu ári, til umbóta ungmennaskólans á Núpi, svo sem með frjálsum samskotum innan félaga, ágóða af skemtunum, hlutaveltum eða öðrum fjáraflasamkomum. Ennfremur skor- ar fundurinn á félögin að gera sitt ýtrasta til þess að auka þekkingu á starfsemi skólans og þýðingu hans fyrir sanna is- lenska menningu. Samþykt í einu hljóði. b. Lagabreytingar. Helstu breytingar

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.