Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1923, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.07.1923, Blaðsíða 8
40 SKINFAXI Fréttir af U. M. F. í héraðssambandinu »Skarphéðinn ■ . U. M. F. Skarphéðbin. Tala félags- manna er 32 og auk þess einn heiðursfé- lagi. Félagið hefir haldið 6 fundi og rætt þar, auk félagsmála, ýins önnur nauðsynja- tnál eins og líftryggingar o. fl. Félagið lét halda 3 fyrirlestra á sinn kosnað til fræðslu um útlend og innlend málefni. Ennfremur stofnaði það til ldutaveltu, skemtana o. fl. U. M. F- Eyrarbakka. Félagsmenn eru 114. Starfsemi félagsins var fólgin í funda- höldum, þar sem rædd voru ýms mál, svo sem heimilisiðnaður, bindindismál, dýraverndun, trjá- og blómarækt og íþróttir. Þrír fyrirlestrar voru fluttir um fræðandi efni. Félagið gekst ennfremur fyrir iðn- sýningu, sem haldin var á Eyrarbakka. Það stofnaði einnig til handavinnunáms- skeiðs. Sendi tvo menn á íþróttanáms- skeiðið við Þjórsárbrú. Félagið gefur út tvö blöð, »Geisla« og »Stjörnu«. Félagsmenn iðkuðu margar af hinum algengu íþróttum. U. M. F. Hvöt í Grímsnesi. Félagið telur alls 54 félaga. Starfsemi félagsins var sem hér greinir: Fundahöld. Voru þar rædd málefni sem snertu starfsemi félagsins, ennfremur bornar fram og ræddar spurningar heimspekilegs efnis. Félagið lét halda þrjá fræðandi fyrir- lestra. — Af íþróttum, sem voru iðkaðar innan félags, má nefna glímur, stökk og hlaup. Iþróttir þessar voru iðkaðar á sunnudögum að sumrinu og að vetrinum á námsskeiði sem haldið var að Minni- Borg. Ennfremur var lagað til á skóg- ræktarbletti félagsins og hlúð að trjá- plöntunum þar. Af öðrum framkvæmdum má nefna söngnámsskeið sem haldið var að Minni-Borg. Reist hesthús yfir 30 hesta á fundarstað hreppsins. Haldin sýning á heimaunnum munum. Haldnar skemtanir og farnar skemtiferðir. Tóbak. Mörg ungmennafélög hafa, einkum á síðari árum, stutt tóbaksbindindismálið. Þau hafa því sýnt það í verkinu, að þau skilja að tóbaksnautnin er einn af verstu löstum þjóðarinnar. Það er bæði skömm og hneyksli að skynbærir menn skuli sækj- ast eftir því að gerast þrælar ástríðunnar. Þeir, sem tóbaksins neyta, kaupa tækifæri dýrum dómum, sem ekkert hafa annað að bjóða en spilla heilsu manna. Það særir líka heilbrigða sómatilfinningu að sjá menn tyggja og svæla tóbak, eða troða því í skilningarvit sín. Alkunnugt er að íslenska þjóðin eyðir árlega mörgum tugum þúsunda fyrir tó- bakið, sem hún neytir. Má það heita ær- ið dýrt lirís sem hún kaupir þannig á sjálfa sig. Ungmennafélögin þurfa öll að verða einhuga um það, að láta einkis ófreistað til þess að losa þjóðina við þenn- an ósóma. Skýrslur. Stjórn U. M. F. I. hefir sent skýrslu- eyðublöð til allra ungmennafélaga á land- inu. Ætlast er til að eyðublöð þessi verði notuð við skýrslugerð næsta ár. Sambandsstjórnin treystir því að öll ung- mennafélög athugi og skilji hversu nauð- synlegt það er að félögin sendi skýrslur sínar á réttum tíma. Skrifið Sambands- stjórn, ef þið fáið ekki skýrslurnar eða Skinfaxa. Sigurður Greipsson frá Haukadal hefir unnið Grettisbeltið öðru sinni. Mynd af Sigurði og ritgerð um beltisglímuna kemur í næsta blaði. Prentsm. Acta h.f. — 1923

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.