Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1923, Síða 4

Skinfaxi - 01.07.1923, Síða 4
36 SKINFAXI Skinfaxi Utgefandi: Samb. Ungrnennafél. lslands 12 blöð á ári. Verð 3 krónur. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Ritstjórn, afgreiðsla og innheímta: Skin- faxi Reykjavík Pósthólf 516. voru að Sambandið héti: Héraðssamband U. M. F. Vestfjarða, að réttur til fulltrúa- kosningar á Héraðsþing sé I fyrir hverja 30 reglulega félaga eða færri, í stað 40 eins og áður var. Nokkrar smærri breyt- ingar voru lagðar fram. Breyt. samþ. með öllum gr, atkvæðum. c. Glímubelti Vcstfjarða. Svohljóðandi tillaga samþykt, framkomin frá allsherjar- nefnd: »Þar sem nefndin sér sér ekki fært að ganga að þeim skilyrðum, sem eigendur beltisins hafa látið í Ijósi að þeir mundu setja, þá leggjum við til að um beltið verði alls ekki kept eins og málið horfir nú við.« d. Fjallamót. Svohljóðandi tillaga sam- þykt: Fundurinn er hlyntur því að ungmenna- félög Vestfjarða hafi fjallamót á komandi sumri á sama stað og síðastliðið sumar, hinn 15. dag júlímánaðar. e. Heimilisiðnaður. Þessi till. samþykt: Fundurinn telur sjálfsagt að ungmenna- félög Héraðssambandsins vinni að eflingu heimilisiðnaðarins með því að efna til nám- skeiðs og sýningar á heimilisiðnaði. Einnig að Héraðssambandið styrki félögin með fjárframlögum. Skulu þau félög, sem eigi hafa notið styrks áður, ganga fyrir öðrum með hann. f. Áætlun um tekjur og gjöld Héraðs- sambandsins. g. Tóbaksbindindi. Svohljóðandi tillaga samþykt í einu hljóði: Með því að þinginu er ljóst að tóbaks- nautn er bæði óþörf og skaðleg, skorar það á fulltrúa sína að beita sér fyrir tó- baksbindindisstartsemi í félögunum, og vera sérstaklega á verði gegn því að ung- lingar venji sig á þessa skaðlegu nautn. h. Bindindismál. Svohljóðandi tillaga samþykt í einu hljóði: Fundurinn er þeirrar skoðunar að hið svokallaða »Spánarvín« hafi gert og geri þjóðinni ómetanlegt tjón siðferðislega og efnalega. Skorar hann því alvarlega á öll félög á Héraðssambandssvæðinu að beita sér öfluglega gegn áfengisnautn í umhverfi sínu. i. Stjórnarkosning. Stjórnin endurkos- in í einu hljóði: Form. Björn Guðmunds- son, ritari Bjarni ívarsson, féh. Kristján Davíðsson. Varastjórnendur einnig endur- kosnir: Form. Guðm. Jónsson frá Mosdal, ritari Jens Hólmgeirsson, féh. Jóh. Davíðss. j. Formaður mintist tveggja fjarlægra sambandsfélaga, er hvorugt hafði getað sent fulltrúa; ávarpaði síðan fulltrúana með stuttri en ágætri ræðu, þakkaði samstarfið og árnaði fulltrúunum og félögunum alls góðs á komandi tíma, og sagði síðan slitið II. þingi sambandsins. Sungið: »Hærra minn guð til þín«. Bjarni Ivarsson Elías Halldórsson (ritarar) Héraðsþingið sóttu auk formanns 14 fulltrúar frá 9 fé- lögum. Tvö þau fjarlægustu, »Unglingur« og »Vestri« gátu ekki sent fulltrúa. Þingið var sett með stuttri ávarpstölu frá for- manni sambandsins og svo var sunginn föðurlandssálmurinn »Faðir andanna«. Þingstörfin voru unnin af mjög miklum áhuga og samviskusemi. Ekki var hægt að ljúka störfunum á tveimur dögum eins og áformað var og stóðu því fundahöld til kl. 12 á hádegi hins þriðja dags. U. M. F. »Árvakur« hafði haft með höndum allan nauðsynlegan undirbúning þingsins. — Tóku þeir félagar fulltrúunum opnum örmum og héldu okkur mjög ánægjulegt

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.