Skinfaxi - 01.07.1923, Side 6
38
SKINFAXI
ustu aldar, sem lögðust á eitt,, þegar
Borgfirðingum tókst að skapa samband
með io ungmennfélögum, innan héraðsins.
Þau vinna nú öll að því eina marki að
samræma fegra og fullkomna það, sem þau
áttu fegurst og best. I því skyni hafa þau
lagt kapp á að bæta heimilisiðnaðinn og
eignast góð bókasöfn.
Andar Egils og Snorra svífa yfir Borg-
firðingum. Hér eru þeir heillavættir, sem
ekki benda mönnum út í bláinn, heldur
leiða að ákveðnu marki, enda ber öllum
réttsýnum mönnum saman um það, að
Ungmennasamband Borgfirðinga hafi orðið
eins konar alsherjarskóli, sem unnið hefir
sveitinni ómetanlegt gagn.
Mjög gætinn og athugull ferðamaður
heimsótti fyrir skömmu ungmennafélagið
»Dagrenning« í Lundarreykjadal. Eftir að
hann hafði lokið miklu lofsorði á fram-
kvæmdir »Dagrenningar«, lýsti hann félags-
andanum á þessa leið: »Starfsáhuginn er
ágætur. Flestum þykir vænt um félagið,
öldnum jafnt sem ungum, bæði þeim sem
í því eru og fyrir utan það. Það hefir
gert stórgagn þarna í dalnum með því að
móta hugsunarhátt fólksins og efla þannig
samúð og félagslund. Samvinnuhugmyndir
félagsmanna eru heilbrigðar og jjroskavæn-
legar, enda tel eg framtíð félagsins örugga
þrátt fyrir óhagstæða afstöðu, sökum strjál-
bygðar«.
Það mun mega segja eitthvaö þessu líkt
um fjölmörg af ungmennafélögum landsins,
þó ekki hafi verið hrópað hátt um afrek
þeirra. Það hefir verið einn af þeirra stóru
kostum, að þau hafa unnið hóglát í fjall-
dalakyrðinni og þess vegna notið sín. Þau
hafa skilið að góðar minningar er besti
arfurinn sem hægt er að fá og vita að
honum fylgir mikil ábyrgð.
Hjarandi.
Úr skýrslum U. M. F. í.
U. M. F. Skeiðamanna hélt opinbera
iðnsýningu 22. maí. Árið 1919 hélt það
iðnsýningu innanfélags. Fór skemtiferð til
Þrastaskógar. 30 félagsmenn slóu og rök-
uðu í 6 klt., eina sumardagsnótt í ágúst,
hjá bónda einum í hreppnum, sem varð
fyrir veikindum.
U. M. F. Biskupstungna, bygði hesthús
hjá fundarstað félagsins 14X6 m. Hrepps-
nefndin lagði til efnið. Liðlega 30 félags-
menn slógu eina sumarnótt hjá bónda,
sem hafði orðið fyrir veikindum. Fátæku
heimili gefið 36 stykki af tatnaði, á jól-
unum.
Arið áður (1920) ræktaði félagið ^kraut-
jurtir heima við bæi, í sveitinni. Eina sum-
arnótt slógu 36 félagsmenn hjá 2 fátæk-
um einyrkjum. Sumardaginn fyrsta gaf
félagið fátæku heimili 30 stykki af íveru-
fatnaði og rúmfötum.
U. M. F. Drengur, Kjósars. fór eina
skemtiferð inn í Botnsdal.
U. M. F. Dagrenning, Borgarf. stóð fyrir
sundnámsskeiði um vikutíma í sundlaug
félagsins. Iþróttamót haldið innanfélags.
Ein skemtun haldin. Jón Olafsson Foss,
læknir, gaf félaginu 100 kr, til að koma
upp jurtagarði við hús félagsins. Unnin 7
dagsv. við sundlaugina.
Arið 1919 hafði félagið sundnámsskeið
í viku, jDátt-takendur 17. Ein skemtisam-
koma haldin.
U. M. F. Reykdæla, Borgfj.s. hafði
íþróttanámsskeið, einkum í glímu og sundi.
U. M. F. Stafholtstungna, Mýras. hélt
íjjróttasýningu og iðnsýningu innan félags-
ins og veitti verðlaun.
Arið áður hélt félagið íþróttanámsskeið
14.—26. júní. Nemendur 27. Kept í víða-
vangshlaupi. Hafði íþróttasýningu við Norð-
urárbrú 4. júlí. Ágóðanum af sýningunni
varið til að steypa sundlaug handa félags-
mönnum.
U. M. F. Egill Skallagrímsson, Mýras.