Skinfaxi - 15.07.1923, Blaðsíða 2
42
SKINFAXI
minna fram en ella mundi. Þó hefir Sig-
urður í þessum Islandsglímum beitt bæði
klofbragði og krækju til sigurs, svo að
ég man, og einu sinni að minsta kosti
gagnbragði, þegar hann var sjálfur að
falli kominn á harðsóttum hælkrók, og
það af slíku snarræði og hárvissri kunn-
áttu, að ég hefi ekki séð betur af sér vik-
ið í glímu.
Það er annars um glímulag Sigurðar að
segja, að ró og gætni einkennir hvað mest
glímu hans. Hann á í því sammerkt við
fleiri ágæta glímumenn. I vörn er hann
þéttur fyrir og mjúkur í senn. Hann stend-
ur prýðilega að glímunni, og þó að illa
sé við hann glímt, en þó er hann mjög
bragðvar. I sókn er hann hamhleypa á
brögð, en þó einkum á hælkrókinn fræga;
er þetta bragð Sigurðar ærið vígamannlegt
og þó hið glæsilegasta, því að hverju
bragði fylgir hann af frábærri prúðmensku.
Þögull og hispurslaus gengur hann að leikn-
um, og lætur ekkert raska ró sinni. Og
Öll er glíma hans hin drengilegasta.
Bestir glímumenn koma úr fjölmenni,
svo sem von er á. Því að þar er helst völ
keppinauta, margra og ólíkra. Sigurður
Greipsson hefir iðkað glímur í Hafnarfirði
um skeið fyrir nokkrum árum, undir hendi
Bjarna Bjarnasonar, sýslunga síns, frá Auðs-
holti. En síðari árin hefir hann orðið að
láta sér nægja þá æfingu, sem föng voru
á heima í sveit hans. Þeim mun betri er sig-
ur hans og þeim mun meiri hróður héraði
hans.
Sigurður Greipsson er fæddur í Hauka-
dal í Biskupstungum og uppalinn þar.
Hann er nú 25 ára að aldri. Hann skortir
3 þuml. í 3 álnir á hæð. En myndin segir
nokkurnveginn til um svip hans og vaxt-
arlag. Honum er ekki krækt saman, og
hann er vel limaður. Ekki veit ég afl
hans, eða hvort það hefir verið tölum tal-
ið. En sannað hafa það keppinautar hans,
að eigi hefir honum orðið aflfátt í leik.
Helgi Hjörvar.
Skýrsla
um allsherjar íþróttamót í Reykjavík 1923.
17. JÚNÍ.
H á s t ö k k:
1. Ósvaldur Knudsen . . . 1,70 metr.
2. Kristján L. Gestsson .1,54 —
3. Huxley Ólafsson .... 1,44 —
800 metra hlaup:
1. Guðmundur Magnússon . . 2,12 mín.
2. Ingimar Jónsson.........2,12,8 —-
3. Geir Gígja..............2,13 —
í s 1 e n s k g 1 í m a í f 1 o k k u m e f t i r
þ y n g d :
A. III. fl. að 60 kg.:
1. Guðjón Einarsson.
2. Ragnar Kristinsson.
3. Guðjón Ólafsson.
B. II. fl. 60—70 kg.:
1. Þorsteinn Kristjánsson.
2. Steindór Valdemarsson.
3. Huxley Ólafsson.
D. I. fl. yfir 70 kg.:
1. Eggert Kristjánsson.
2. Magnús Sigurðsson.
3. Ottó Marteinsson.
100 m e t r a h1a u p:
1. Kristján L. Gestsson.........12,4 sek.
2. Þorgeir Jónsson.............12,6 —
3. Huxley Ólafsson.............12,8 —
5000 metra hlaup:
1. Guðjón Júlíusson..........17,7 mín.
2. Ólafur Þorkelsson..........17,22 —
3. Geir Gígja.................18,50 —-
Spjótkast báðar hendur
samanlagt:
1. Lúðvík Sigmundsson . . . 51,55 metr.
2. Magnús Einarsson.........50,52 —