Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1923, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.09.1923, Blaðsíða 5
inn því að skapa eitt eða annað'úr engu. þess vegna er það, að kostir eða lestir mannsins skapa oftast framtíð hans og hann flýtur eða sekkur með þeim. En eg held, að það frækorn, sem bezt hefir verið hlúð að í sál mannsins, á meðan hún var að þroskast, verði tryggasta munablómið hans. En hvað er vega- nesti ? Eitt hið bezta af því er s a k- leysið. Þegar barnið fæðist, er það saklaust. í hug þess er engin eyðandi, deyfandi sorg. Engin spilt fýsn er farin að sverta sálina. Sá sem á sakleysi bernskunnar fram á fullorðinsárin, er öfundsverður. Enginn getur hlúð betur að því bezta í barnseðlinu en góð móðir, og enginn getur útrýmt því betur en móðir, sem ekki kann að ala upp barnið sitt, og ekki nær til hljómþyðustu og viðkvæmustu strengjanna í sál þess. Eg fann einu sinni smásögubrot á blaðsnepli. það var af dreng, sem var að leggja af stað burt frá móður sinni. Móðirin var fátæk af peningum, en hún átti gott og hreint hjarta. Ilana langaði til að gefa drengnum sínum eitt- hvað í veganesti. Hún tók þá litla, rauða rós, festi hana á barm hans og sagði: „Eigðu þessa litlu rós og glataðu henni ekki. Ilún á að minna þig á sakleysi þitt.....“ Lengra gat eg ekki lesið, því blaðið var rifið sundur. En ef drengur- inn hefir varðveitt rauðu rósina, sem honum var trúað fyrir, þá er eg viss um, að hann hefir líka eignast annað veganesti, sem hann í leit gæfunnar hefir grafið upp úr sinni eigin sál, vega- nesti, sem hefir gefið honum flugkraft upp að hástóli gæfunnar. pá vildi eg næst minnast lítið eitt á s j á 1 f s v i i' ð i n g u n a, sem einn að- alþátt veganestisins. Að virða sjálfan sig er ekki hið sama og vera ,,montinn“.| Sá sem virðir sjálfan sig af raun- v e r u 1 e g u m kostum — hann er sann- ur maðui'. En sá sem virðir sig fyrirl ímyndaða kosti, er „montinn“. Hann er ekki nema hálfur maður. Iíugsið ykkur nú að drengurinn hafi týnt rauðu rósinni sinni og með henni sakleysinu og sjálfsvirðingunni. Hvað kemur þá í staðinn ? Tilhneigingin til að s ý n a s t í stað þess að v e r a. það er alt of mikið orðið af þessari menningarfroðu í heiminum. Fólkið virðist hugsa of mikið um að elta tísk- una. Hugsið ykkur nú að tískan sé ær — feit og falleg. Oft verður að venja móð- urlaus lömb undir lamblausar ær. þið megið vera viss um, að það er langt um auðveldara að koma veganestislausum manni á spena tízkunnar en lambinu undir ána. Maðurinn tekur spenann sjáífur, en það gerir lambið ekki. En lambið fitnar og þroskast af sinni fæðu, í stað þess að maðurinn — þó hann elti tízkuna og sjúgi með hugsunarlausri græðgi — er ekkert feitari samt, fremur en mögru kýrnar hans Faraós. það er einn af ókostum manneðlisins, að ganga hugsunarlaust fram hjá því fullkomna, en staðnæmast frekar hjá því, sem er aðeins til þess að horfa á það. Ríkir menn og skartbúnir ná ósjald- an mikilli lýðhylli, þó að þeir hafi ann- ars fátt til síns ágætis. Iíeimskingjar og lýðskrumarar hópast utan um þá og hneigja sig fyrir innihaldslausu ytra borði. þegar við lítum fljótlega á einhvern hlut, sjáum við auðvitað aðeins umbúð- irnar. Séu þær glæsilegar, verður okkur ætíð að dást að þeim. En áður en við metum fegurðina eða sýnum henni lotn- ingu, verðum við að athuga, hvort ljóminn stafar frá innihaldinu, eða hvort hann er aðeins hverfult geislabrot frá grútarljósum hégómans. ■í Eg hefi nú nefnt sakleysið og sjálfs- | vii’ðinguna sem veganesti. Sakleysið Ihefir það gildi, að gefa manninum hlýj- Sar og viðkvæmar tilfinningar, svo hann

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.