Skinfaxi - 01.09.1923, Page 8
56
SKINFAXI
að gruna, að fjárhagsstefna þjóðarinnar
muni vera „norður og niður“.
En jafnframt því sem fjárhagur
þjóðarinnar hefir komist á ringulreið,
hafa einnig orðið gárótt straumköst á
sviði stjórnmála og trúmála. Nýjar
stefnur hafa brent sig inn í hugi manna
og knúð stéttir og flokka til andstæðra
atlaga.
Gneistaflugið leiftrar um land alt af
sverðseggjum andstæðra brautryðjenda.
það er sízt að furða, þó mörgum verðí
á að spyrja: Er ekki þjóð vor að sökkva
dýpra og dýpra niður í foræði sundur-
lyndis og flokkadrátta ? Stefnir ekki alt
„norður og niður“ ? Eru þessar andstæð-
ur nauðsynlegar? Geta þær orðið væn-
legar til sigurs?
Flestir munu svara: Lífið er ekkert
annað en andstæður, og án þeirra getur
ekkert líf þrifist.
En — eru ekki innbyrðis hólmgöngur
óþarfar og beinlínis skaðlegar, þeim sem
eru umkringdir árásum utan að komandi
andstæða ?
Er ekki nauðsynlegt að reyna að taka
í taumana — sameina kraftana? Finna
ekki ungmennafélögin brennandi hvöt
hjá sér til þess að tryggja landi sínu
hugheila, starfandi þjóð, sem byggi
framtíð sína á sannkristilegum grund-
velli ?
Getur það ekki verið að miklu leyti á
valdi þeirra að breyta stefnunni suður
og upp, mót sól og vori ? Á. D.
Æfisagan.
Æfisögu Guðm. Hjaltasonar er verið
að prenta. Verður' hún send hið fyrsta,
með póstkröfu, til áskrifenda út um
land. Er þess vænst, að póstkröfurnar
verði innleystar hið bráðasta eftir að
menn fá tilkynninguna. Menn hafi það
hugfast, að ágóðinn af sölu bókarinnar
rennur til ekkju höfundarins. Má heita
að æfisagan og fyrirlestrarnir séu eini
arfurinn, sem höfundurinn lét eftir sig
handa ekkjunni. Og er undir sölu bókar-
innar komið, hve mikið ekkjunni verð-
ur úr honum.
Ekki verður ákveðið verð bókarinnar
fyr en hún er komin út og séð er, hver
útgáfukostnaðurinn verður. G. D.
Góðar fréttir.
Magnús Stefánsson og Guðrún
Björnsdóttir taka sæti í stjórn U. M. F.
1. Gera þau það fyrir áskoranir, sem
þeim hafa borist.
Borgið blaðið.
Árnesingar og Rangvellingar eru
beðnir að borga Skinfaxa til Sigurðar
Greipssonar á Torfastöðum, form. Hér-
aðssamb. „Skarphéðinn“.
Afgreiðsla.
M u n i ð að afgreiðsla Skinfaxa er í
Bergstaðastræti 51, Skrifið þangað.
Ég vil heim þegar vorar.
N ú vil eg heim þegar vorar
og vellirnir grænka á ný,
er lömbin í liögum sér leika
og lóurnar kveða við ský.
Nú vil eg heim þegar vorar,
það vermir huga minn,
áttundi tekur enda
útlegðar veturinn. .
Nú vil eg heim þegar vorar,
eg veit að mín bíða þar:
örendar æskuvonir
og andsk. þúfurnar.
A. G. E.
Prentsm. Acta h.f. — 1923