Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1924, Síða 1

Skinfaxi - 01.07.1924, Síða 1
7. BLAB REYKJAVÍK, JÚLÍ 1924. XV. ÁB Upp til fjalla. Nær 200 ár eru liðin, síðan Rousseau neitaði því, að lærdómur og listir bættu heilbrigði og siðgæði þjóðarinnar. Hinn mikli rithöfundur og uppeldisfræðing- ur dæmdi vægðarlaust hina lærðu menning sinnar aldar. Hann krafðist þess, að kynslóðirnar liyrfu aftur til liins raunsanna lífs og lifðu í samræmi við landið og staðhættina, sem fæddi þær og fóstraði, gerðust náttúrubörn, sem mettu frelsið og hreystina fram- ar öllu öðru. Kenningar Rousseau vöktu ógurlegt öldurót meðal flestra menningarþjóða. þær plægðu gi’ýtt og gróin lönd mið- aldamenningarinnar. pær vildu steypa af stóli allri hégómadýrð, en kröfðust meiri manndóms og heilbrigði. pjóðirnar urðu að færa dýrar fórnir, áður en þær lærðu að meta þessar kenn- ingar, og eflaust á heimurinn margt ónumið enn af uppeldisfræði Rousseau. pó hefir hún farið sigurför um heim- inn og markað djúp spor i menningar- sögu 'þjóðanna. Síðan á dögum Rousseau hafa fjöl- margir uppeldisfræðingar og aðrir um- bótamenn endurtekið kröfurnar um það, að náttúran sjálf ætti fyrst og fremst að uppala mennina. peir hafa fundið hættuna, sem stafar af einhæfri bóka- og bæjamenning, sem hefir veikl- andi og ósjaldan spillandi áhrif. Hún elur lieigulshátt og nautnasýki og ræn- ir þjóðirnar þreki og karlmensku. Til þess að koma i veg fyrir þessi þjóðarmein, þurfa allir bæja-, og helst sveita-búar líka, að verja nokkrum tima árlega til þess, að gerast náttúrubörn, dvelja upp til fjalla og ferðast fótgang- andi um dali og óbygðir. peir verða þá útilegumenn um stundarsakir, njóta sól- arinnar og svalandi lieiðloftsins, kynn- ast stormum og regni, þreyta fjallgöng- ur og njóta víðsýnisins, sem fylgir þeim. Fátt er ánægjulegra en æfintýri fjalla- ferðanna. 1 þeim er fólgin alhliða orku- sókn. pau eggja hugsun og stæla kraft- ana. íslendingar ættu að vera meiri nátt- úrubörn en flestar aðrar þjóðir. peir eiga ónumið víðlendi furðu margbreytt að fegurð og gæðum. pað er mótað af mildi og liörku, auðn og gróðri, með himinháum tindum og dynjandi foss- falli. Og árstíðaskiftin íslensku skapa þjóðinni undraheim, með dimma daga og sólbjartar nætur og öllum þeim lit- brigðum, sem liggja þar á milli. En við fámn ekki alla þessa fjöl- breytni fyrirhafnarlaust. Yið liljótum að þreyta aflraunir andlegar og likam- legar við ótamin náttúruvöld, og ef við gleymum að iðka þessar aflraunir, þá verður þess slcamt að bíða, að við get- um ekki lengur heitið íslendingar. Bættar samgöngur og breyttir þjóð-

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.