Skinfaxi - 01.07.1924, Side 7
SKINFAXI
55
ur 1, Vestri 3, Víðir 1, Vorblóm 6, pórs-
mörk 10, próttur 3, Önundur 4.
Fundir hafa verið lialdnir 6, á tima-
bilinu 27. nóv. til 3. mai, og hafa þessi
mál verið rædd þar: pjóðhátíðar-
d a g u r I s 1 e n d i n g a, rætt á tveim
fundum; skógræktarmál, rætt á
tveimur fundum; þegnskyldu-
vinna, rætt á einum fundi; heim-
i I i s i ð n a ð u r, rætt á tveim fund-
um; 1 0 00 ára afmælishátíð
Alþingis á pingvöllum 193 0,
rætt á tveim fundum; auk ýmsra
smærri mála sem drepið liefir verið á.
Skrifað blað var á síðustu 4 fundun-
um og var það nefnt „Farfuglar“. I þvi
hafa birst þessar greinar: Fylgt úr hlaði
(G. G.), Starf og áhugi (p. V.), Fegurð
(p. V.), Sambandsmerki U. M. F. í.
(J. þ.), Heimilisiðnaður — menningar-
mál (M. S.), Heim! (M. S.), Gagnrýni
hóka (B. S.), Stórar kirkjur (G. Bjd.),
Farfuglar (A. J>.), Sólskin og mammon
(H. N.), Áhugamál U. M. F. í. (A. S.),
Söngur (G. Bjd.), Nokkur orð um glað-
lyndi (G. E. N.), Drengskapur (J. P.),
Dísa, æfintýri (S. J.), Vorgestir, kveðju-
orð (G. G.), Kveðja, kvæði ort í tilefni
af síðasta fundinum og sungið þar
(S. G.).
]?á hafa verið sagðar fréttir frá, Aft-
urelding, Bifröst, Stokkseyrar og þ>órs-
mörk; A. Försund, norskur stúdent og
ungmennafélagi, fkitti erindi um starf
og stefnu norsku félaganna; sögð hafa
verið ágrip af 3 ferðasögum: um sam-
bandssvæði- héraðssambandsins „Skarp-
héðinn“ (Gunnl. Björnsson), til Róma-
borgar (Rikarður Jónsson), og til
Gautaborgar og víðar (Guðbjörn Guð-
mundsson). Tveir félagar (E. M. J. og
S. G.) liafa lesið upp frumort kvæði, og
einn (A. )?.) lesið upp frumsamda smá-
sögu.
Fundirnir liafa jafnan byrjað og end-
að með söng íslenskra ljóða, og á liverj-
um fundi hefir verið hlé og þá drukk-
ið kaffi, og varð það sterkasti þáttur-
inn til að auka fljóta kynningu þessara
ókunnu gesta, sem þarna voru saman
komnir, og setja sérstakan gleðiblæ yf-
ir fundina.
Fundarsókn var jafnan góð eftir at-
vikum, og bendir það til, að áhugi hafi
verið mikill fyrir þessari starfsemi. Að
meðaltali voru 75 félagar á fundi, og
þegar þess er gætt, að aldrei voru fleiri
en 86—125 í bænum af þeim 160 sem
skráðir voru, og auk þess flest af þessu
fólki annara þjónar eða skólafólk, sem
varð að láta námið sitja fyrir öðru suma
fundardagana, verð eg að álykta, að
fundirnir hafi alment verið lil ánægju.
Um árangur fundanna er ekki að svo
slöddu unt að gera sér fult álit, til þess
er reynslan of stutt. En þvi skal eigi
leynt, að við höfum þegar orðið vör
meiri árangurs en við bjuggumst við er
við hófum starf þetta, og sem hefir
sannfært okkur um, hversu þýðing-
armikið það er fyrir félagsheildina
og einstaklingana, og því munum við
halda starfinu áfram komandi vetur, og
væntum við þá að félagsstjórnirnar
verði árvakrari en síðast, með að senda
okkur nöfn félaga sinna, þeirra er hér
dvelja næsta vetur, þvi að engan veginn
er víst, að okkur takist ella að ná til
þeirra.
Guðbjörn Guðmundsson,
form. U. M. S. K.
Vorið-
Öll höfum við sjálfsagt slaðið uppi í
fjallshlíð fagran vormorgun og séð yfir
sveit okkar og hérað. — Séð fátækleg
bændabýli standa dreift á illa ræktuð-