Skinfaxi - 01.02.1929, Page 2
18
SKINFAXI
heild að hinni auknu metnun, en ef hún hefði verið
reist á þjóðernislegum grundvelli og meira með okkar
sérstöku þarfir fyrir augum.
Ungmennafélögin eiga að vera vökumenn þjóðarinn-
ar og þá sérstaklega æskuiýðsins. Það verður hlutverk
vökumannsins að vera á verði um alt það sem mestu f
máli skiftir fyrir þessa fámennu þjóð og horfir á hags-
bótaleið.
En hvergi er viðlendari akur ræktaður en með menta-
málum hverrar þjóðar. Þess vegna varðar það mestu,
hvernig þau verða i framkvæmdinni.
Það getur verið lærdómsrlkt fyrir islensku ungmenna-
félögin, að athuga hvernig hefir farið tam þessa æsku-
Iýðshreyfingu hjá frændþjóðum okkar. Þau hafa þar
hvarvetna orðið þjóðernisleg hreyfing með kröfum og
framkvæmdum í þjóðlega átt. Æskulýðshreyfingin danska
ber uppi hina vel þektu dönsku lýðháskóla, sem játað
er að hafi unnið dönsku þjóðinni — og jafn vei Norð-
urlöndum í heild sinni — undramikið gagn. Norsku ung-
mennafélögin hafa að mínu viti unnið hið ótrúlegasta
þrekvirki. Bæði með þeirri stórmerku hluttöku sem þau
hafa átt í mentamálum lands síns og þar með lagt sinn
mikla skerf til hinnar merku og næstum einstæðu end-
urreisnaibaráttu Noregs. Og þá ekki síður með þeirri
djörfu konungshugsjón, að skapa nýtt sameiginlegt rit-
mál fyrir allan Noreg. Auðvitað er þeirri baráttu enn
ekki iokið, en flestir kunnugir telja sigurinn í nánd og
þegar hefir mikið áunnist. Frá Svíþjóð er sömu söguna
að segja. Og nú síðustu árin hafa ungmennafélögin þar
í landi hafið nýja sókn til meiri þjóðernislegrar hreyf-
ingar. i
Sumir kunna nú að ætla að með þessum linum sé
að þv.í stefnt, að reisa einhverja þjóðernislega þvergirð-
ing eða ofrembing. En því fer fjarri. Sönn þjóðernisleg
hugsun á alls óskylt við það, að útiloka sig frá betri
áhrifum frá útlendum og framandi þjóðum. Þvert á móti
á hún vegna ástar sinnar á iandi og þjóð að vera si