Skinfaxi - 01.02.1929, Page 4
28
SKINFÁXI
Ungmennafélögin eiga og þurfa að beita sér fyrir
stofnun héraðsskóla sem starfræktir séu samkvæmt hug-
sjónum þeirra og grundvallarreglum. Efalaust er Lauga-
skólinn i S.-Þingeyjarsýslu merkasta íslenska tilraunin
í þessa átt. Bæði sökum þess, að ungmennafélög og
æskulýður sýslunnar bera sjálf skólastofnunina til fram-
kvæmda, þótt ríflegur styrkur komi annarstaðar frá. Og
ekki síður er þessi skóli merkilegur sökum þess, að
fyrsta skifti i islenskum skóla, er mentun handarinnar
(hin verklega mentun) sett iafn hátt og hugans.
Þess væri full þörf, að einmitt Ungmennafélögin
beittu sér fyrir þvl, að hér gerðust þau straumhvörf,
að hin almenna verklega mentun yrði aukin. Eins og
nú er komið er hin bóklega mentun komin i viðunan-
legt horf að öðru leyti en því, að nauðsynlegt er að
hún verði þjóðlegri og það á hún að verða í hverju
héraði með æskulýðsskólum, sem útbreiða hugsjónir
Ungmennafélaganna. En verklegri menningu almennings
er enn alt of áfátt hjá okkur og úr því er nauðsýnlegt
aft bæta með aukinni tilsögn í þeim fræðum f barna-
skólum og héraðsskólum.
Eins og kunnugt er fer héraðsskólum smáfjölgandi
hér á landi og flestir skólastjórar þeirra og forvígismenn
eru meira og minna snortnir af Ungmennafélagshreyf-
ingunni og mótaðir af henni. Nú f haust er að risa
upp hinn margumtalaði héraðsskóli á Suðurlandsundir-
lendinu og verður forstjóri hans gamall og áhugasamur
Ungmennafélagsmaður og má vænta hins besta af skóla-
stjórn hans. Hvftárbakkaskólinn hefir einnig verið með
almennum stuðningi úr hinu fagra Borgarfjarðarhéraði
efldur f þjóðlega átt sfðustu árin.
En hvaft höfumst vér Vestfirðingar að?
Vegna legu okkar er okkur hin mesta nauðsyn á
góftum héraðsskóla og við höfum lfka að vissu leyti
fengið hann með Núpsskólanum, sem aðallega er til
orftinn fyrir forgöngu einstaks manns, er meft dæma-
fárri óeigingirni og þrautsegju hefir starfað fyrir þá