Skinfaxi - 01.02.1929, Blaðsíða 5
SKINFAXI 21
hugsjón sína, að koma upp góðum héraðsskóla á Vest*
fjðrðuin. Starf sr. Sigtryggs Guðlaugssonar í mentamál-
um okkar Vestfirðinga er svo merkilegt, að um það
þyrfti að rita sérstaklega af einhverjum lærisveina hans
I eða nákunnugum manni.
Nú hefir héraðssamband Ungmennafélaganna hér
tekið héraðsskólamálið á slna arma og þokað því nokk-
uð í áttina, en ofsmátt vegna þess að félögin eru ekki
nógu samtaka um þetta merkilega starf. Dæmi annara,
bæði innlend og erlend, ættu að vera okkur upphvatn-
ing til þess, að fyllast nýjum krafti fyrir þessu merki-
lega máli og það því fremur sem okkur er boðin fram-
rétt hönd brautryðjandans og samkennara hans í þessu
skólamáli. Vegna þessa eigum við hægara uur fram-
kvæmdir ef rétt er að farið.
I>að er líka min trú, að samhuga sókn í þessu máli
myndi a. m. k. er timar liðu fram hafa örfandi áhrif á
alla góða starfsemi æskulýðs hér vestra og auk þessa
á góð skólastofnun að geta orðið óbein lyftistöng margra
almennra framfaramála.
Einhverjir kunna nú aö segja, að með starfrækslu
unglingaskóla I kaupstöðum og sjóþorpum yrði uniræddu
marki náð og sérstök skólastofnun sé óþörf. En eg tel
það fjarri. Þeir skólar geta bæði verið góðir og nauð-
synlegir þótt þeir ekki komi að fullutn notum til þeirra
hluta sem hér hefir verið bent á.
Jafnhliða héraðsskólamálinu ættu Ungmennafélögin
að láta sér hughaldið um eflingu menningarsjóðs Vest-
firðinga og mun bráðlega hér í blaðinu birt skipulags-
* skrá fyrir sjóðinn og greinargerð fyrir ætlunarverki
hans.