Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1929, Page 6

Skinfaxi - 01.02.1929, Page 6
22 SKINFAXI Litast um. 1. des. 1928. [Niðurl.] í árbjarraa aldar þessarar hefjast „vormenn íslands" handa. Það er ekki stjórnmálabarátta þjóðarinnar, sem þeir Iáta sig mestu máli skifta, þvi á þvi sviði var þegar sigurvinningur fenginn 1903 og síðan hver af öðr- um 1915 og 1918. — En það voru önnur stjórmnál og sjálfstæðismál, engu þýðingarminni, sem þeir hófust handa með: persónulegt sjálfstæði og sjálfstjórn hvers einstaklings. Öll stefnuskráin er ofin um þann kjarna: Sannmeritaðu sjálfan þig, og hjálpaðu öðrutn til menn- ingar, og hafðu að hyrningarsteinum þeirrar viðleitni: Kristindóminn, þjóðerniskendina og móðurmálið. Málgagn okkar, Skinfaxi, réðist all-snarplega á læpu- skapshugsunarhátt þann, sem mjög bar á í byrjun ald- arinnar, og birtist i því, meðal annars, að ósiðvandir fjárbraskarar óðu hér um, gintu ýmsa einfalda efna- menn, — oft með því, að veita þeim áfengi, — til þess að ljá nöfn sin og eignir til tryggingar í braski þeirra. Mun þar margur hafa mist aleigu sína, og hefði eflaust hlotist af meira tjón, ef enginn hefði opnað augu fólks- ins fyrir hættunni. Hér voru komnir „Filistear“ nútím- ans, sein réðust á þjóðina, þegar hún var að setjast að aftur í fyrirheitnu landi frelsis og sjálfstæðis, eftir margra alda útlegð einveldis, einokunar og hverskonar harðréttis, sem undirlægjuhætti og eynid eru sífelt sam- fara. Golíat er ekki enn að velli lagður. Hann kemur dag hvern fram fyrir fylkingar sínar, risavaxin eirbrynjuð lmynd sjálfselsku, eigingirni og íhaldssemi á öllum svið- um. í 40 daga urðu ísraelsmenn að þola ögranir risans. Þætti mér ekki ólíklegt, að Golíat ögraði okkur i 40 ár, en hann hlýtur að falla og skal falla!

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.