Skinfaxi - 01.02.1929, Qupperneq 16
32
SKINFAXI
Áratugi tvo var unnið,
traustið fest á þrek og gæði.
Áratugi tvo var spunnið
tímans gull í heillaþræði.
Snúinn er á vegum vorum
vaxtarlífi ríkur þáttur,
sést í hugum, sést i sporum
sveitarinnar besti máttur.
Þeir, sem manna fremstir fundu
félagsskyldu góðra þegna,
löngum eigin bagga bundu
bæði sín og heildar vegna.
Félagsstarf, sem hendur lierða,
hugans magn, sem eining gefur,
er og var og á að verða
æskulýðsins þroskavefur.
Guðm. Ingi Kristjánsson.
U. M. F. „Bifröst".
Ungmennafjelög Önfirðinga. Kvæðið hér á undan er flutt i
samk. Önfirskra ungmennaíjelaga (29. des. s. I.) sein getið er f
siðasta liefti. Ungniennaíjel. Önfirðinga var stofnað haustið 1908.
Lögin voru endanl. samþ. 6. des. '08. Taldist þvi fjelagsskapurinn
nú við árslok 1928 — hafa starfað i Önundarfirði í tuttugu ár. Er
þó einu ári betur, þvl veturinn áðui stofnuðum við 12drengir —
i Mosdal og Valþjófsdal, fjelagið „Valþjóf", hið fyrsta ungin.fjelag,
sem stofnað var á Vestfjörðum. Þegar Umf. Önf. var stofnað varð
það ein deild þess fjelags: „Dalsdeild". Tvær deildir aðrar „Bjarndæla"
og „Önundur" bættust við. Stofnendur voru í deildunum 12, 10 og 8
30 alls. Síðar bættist sú 4. Strandadeild við. Fjölgaði þá og fjel. injög.
Við ársbyrjun 1917 • skiftist fjelagið í 4 fjel.: „Framar", „Bifröst",
„Önund" og „Breiðablik*. Aðeins 4 af stofnenduni eru nú eftir innan
ungm.fjel.: Stefán Fálsson, Halldór Þorvaldsson, Ólafur Steinþórsson
og sá, sem þessar línur skrifar. - - j stað þeirra sem írá urðu að
hverfa hafa jafnan bæst þar við kostakonur og menn. - Og þess
vil eg óska sveitungum mfnum Önfirðingum, að svo megi verða:
Æ renni ein - og fleiri — | öld hinni fyrri mærri!
að dug og dáðum meiri | í dyggðinni ennþá stærri!
OUÐM. J. FRÁ MOSDAL.
Prentsm. Vesturlands, Ísafífðu