Rauði fáninn - 01.11.1936, Blaðsíða 2

Rauði fáninn - 01.11.1936, Blaðsíða 2
2 RAUÐI FÁNINN Frá Siglufirði §UK heldiar ráðslefnu Samband ungra kommúnista hefir nú undanfarna daga haldið ráðstefnu í Reykjaví'k. Sátu hana um 20 manns. Voru þar fulltrúar frá Reykja- vík, Akureyri, Siglufirði og Húsavík og ennfremur mættu þar FUK-félag- ar fyrir Isafjörð, Vestmannaeyjar og Austfirði. Ráðstefna þessi er háð á mjög mikilvægum tímamótum. Afturhalds- öflin herða hvarvetna sóknina og bú- ast til að ræna alþýðuna frelsi henn- ar og fengnum réttindum. Það varð því eitt af veigamestu viðfangsefnum ráðstefnunnar, að ræða um vörn og gagnsókn æskunnar gegn ofbeldisá- formum fasismans. Allir fulltrúarnir voru á einu máli um það, að það eina ráð, sem dygði væri samfylking og samstarf allra írjálslyndra æskulýðsfélaga í land- inu fyrir lýðræði, frelsi og menning- armálum æskunnar. Yrðu æskulýðsfé- lög vinstri flokkanna, Ungmennafé- Lögin o. s. frv. að beita sér fyrir þessu og vinna að því að skapa víðtækan, frjálslyndan félagsskap, er fær væri um að standa vörð um frelsi og lýð- ræði þjóðarinnar og verja æskuna gegn eitri fasismans. Var síðan rætt nákvæmlega um á- standið á hverjum stað og gerðar á- ætlanir um starfið þar. Samtímis þessari ráðstefnu, fór fram þing Alþýðusambands Islands og Sambands ungra jafnaðarmanna, þar sem samfylkingarmálin voru til umræðu. Sendi SUK þingi ungra jafnaðarmanna tilboð um samstarf og samfylkingu, en því miður svaraði það aðeins því, að það mundi í þessu máli binda sig við ákvarðanir Al- þýðusambandsþingsins. Við treystum því þó, að þetta verði á engan hátt til að hindra samvinnu okkar við unga jafnaðarmenn. — Enda mun það einlægur vilji allrar hugsandi al- þýðuæsku í landinu, að samfylking- in takist sem fyrst. Ráðstefnan samþykkti ávarp til ísl. æskulýðsins, sem birt er á öðrum stað í blaðinu. Þessi ráðstefna SUK markar stórt spor í samfylkingarbaráttu æskunn- ar. Væntum við þess, að hver ein- asti F.U.K.-félagi vinni nú ötullega að framkvæmd þeirra verkefna, er fyrir liggja — og heitum á atla frjáls- lynda æsku í landinu, að styðja þessa mikilvægu baráttu. Á Siglufirði eru fjögur pólitísk æskulýðsfélög. Félag ungra kommún- ista, Félag ungra jafnaðarmanna, Fé- lag ungra framsóknarmanna og Fé- lag ungra sjálfstæðismanna. Um starf þessara félaga er það að segja, að það hefir verið mjög misjafnt, eins og’ gefur að skilja. Það er mikið vafa- mál, hvort hið síðasttalda getur kallast æskulýðsfélag, þar sem vit- anlegt er, að því hefir verið haldið uppi af mönnum, sem löngu eru hætt- ir að vera ungir, bæði líkamlega og það ekki síður andlega. Sömuleiðis er vafamál hvort hægt er að tala um það sem starfandi fél-ag, því fundir hafa ekki vefið haldnir nú um æði langt skeið. F. U.F. var stofnað s. 1. vor. Er það því bæði ungt og óreynt og verður ekki að svo stöddu sagt urn hver þess framtíð verður. Starf F. U. J. hefir legið niðri nú um eins eða tveggja ára skeið. Eina félagið, sem haldið hefir uppi óslitnu félagsstarfi og heldur því enn uppi, er F. U. K. Þó að misjafnlega hafi verið unnið og þó að stundum hafi bláþræðir komið á starfið, þá hefir líka stund- um verið vel starfið og þráðurinn aldrei slitnað. Síðastl. vetur bætt- ust því margir nýir meðlimir og all- mikið líf færðist í það, en í sumar dofnaði aftur yfir því, eins og öllu félagslífi á staðnum yfirleitt. Eru það atvinnuhættirnir sem því valda. Nú með vetrinum mun starfið lifna og glæðast á ný. Á Siglufirði eru ótalmörg verkefni, sem bíða úrlausnar æskulýðsins. At- vinnu- og menningarskilyrði hans eru algerlega óviðunandi á margan hátt. Sérstaklega er þó sundlaugarmálið það mál, sem hrópar á æskulýðinn. Það er svo mikið heilbrigðis- og menn- ingarmál, að það má ekki dragast að það komist í framkvæmd. En til þess að geta leyst þessi verkefni, þá þarf mikið átak. Það kostar baráttu við afturhaldsöflin, sem nú eru ráðandi í bænum. Nú þurfa ungir kommúnistar og RAUÐI FÁNINN. Mánaðarlegt æskulýðsblað. Útgefandi: S.U.K. á íslandi. (Deild úr A.U.K.). Afgreiðslumaður: Jóhannes Jóseps- son, Laugaveg 38, Reykjavík. Póstbox: 761. Verð kr. 3.00 árgangurinn, lausasala 25 aura eintakið. Ritstjóri: Hallgi'ímur Hallgrímsson. ungir jafnaðarmenn að taka höndum saman í þessari menningarbaráttu. Og þeir þurfa að fá allan frjálslynd- an æskulýð í lið með sér. Bezt væri ef takast mætti að mynda eitt öflugt og sterkt æskulýðsfélag, er starfi á grundvelli frjálslyndis og lýðræðis að alhliða framförum og umbótum æsku- lýðnum til handa. Það, að mynda slík varanleg samtök, er verkefni, sem nú liggur næst og mest er knýjandi. Og á því, hvernig það verður leyst, veltur mikið. Á. r I landi Mussolinis. Bologna, 13. okt. Hér stíga nauð- synjavörurnar mjög. Brauð hefir stigið um 10 cent kg., fuglakjöt frá 6,5 upp í 10 lírur, kaffi frá 31 upp í 34 lírur kg., sítrónur frá 30 upp í 70 cent stykkið. Þessi verðhækkun vekur mikla andúð, þar sem launin eru svo lág, og 35000 verkamenn eru vinnulausir. Oft heyrist sagt manna á milli: ,,Við ættum að fara að eins- og á Spáni“. Sunnudagsnóttina var málað á múrvegginn á Piazza 8 agosto: ,,Lifi alþýðufylkingin“. Áletr- unin stóð allan sunnudaginn. í Vestmannaeyjum hefir nýlega verið stofnað sundfélag. Fyrir voru í bænum 2 íþróttafélög,. „Týr“ og ,,Þór“. Aðstaða til sundiðk- ana er mjög góð í Eyjum, þegar hin ágæta, heita sjólaug bæjarins er op- in. En það er því miður ekki alltaf. Laug þessi er 20 m. á lengd og þykir því of stutt til lögmætrar keppni,. enda eru komnar fram raddir um að lengja hana um 5 m. Sömuleiðis þyrfti að koma upp sólbaðsskýli við laugina og jafnvel byggja yfir hana, en þá. yrði hún miklu aðgengilegri á vet- urna og sparari í rekstri. Nú er verið að gera endurbætur á Alþýðuhúsi Vestmannaeyja, byggja leiksvið o. fl. Verður húsið þá af- bragðs samkomuhús og fyllilega á borð við hin bestu í öðrum bæjum. Þá á unga fólkið í Eyjum kost á verulega góðu húsi til skemmtana- og hátíðahalda. RAUÐI FÁNINN er eina æskulýðsblað lands- ins. Útbreiðið R. F. j

x

Rauði fáninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rauði fáninn
https://timarit.is/publication/333

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.